Cristiano Ronaldo skráði nafn sitt í sögubækur Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu þegar hann skaut Real Madrid áfram í undanúrslitin þegar hann skoraði í uppbótartíma úr vítaspyrnu gegn Juventus.
Þetta var 15. mark Ronaldos í Meistaradeildinni á leiktíðinni en hann hefur skorað í öllum 11 leikjum Madridarliðsins í deildinni á þessu tímabili og það hefur engum öðrum leikmanni tekist.
Hann er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar með 119 mörk.
Portúgalinn varð þriðji leikmaðurinn til að ná að spila 150 leiki í Meistaradeildinni en markvörðurinn Iker Casillas á flesta leiki í deildinni eða 167 og næstur kemur Xavi Hernandez með 151 leik. gummih@mbl.is