Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjarstjórnar í Garði, leiðir lista Sjálfstæðismanna og óháðra í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis.
Einar Jón Pálsson, stöðvarstjóri og forseti bæjarstjórnar í Garði, leiðir lista Sjálfstæðismanna og óháðra í sameinuðu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis.
Á stofnfundi við sameiningu Sjálfstæðisfélaganna í bæjunum var skipuð uppstillingarnefnd sem auglýsti eftir frambjóðendum í báðum sveitarfélögum. Tillaga nefndarinnar að framboðslista var síðan samþykkt samhljóða.
Í 2. sæti listans er Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, flugverndarstarfsmaður og bæjarfulltrúi og í 3. sæti er Haraldur Helgason yfirmatreiðslumaður.