Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans hjá HB unnu sinn annan leik í röð í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. HB vann þá öruggan 3:0-útisigur á Skála. Brynjar Hlöðversson lék allan leikinn í liði HB, sem er í 3.
Heimir Guðjónsson og lærisveinar hans hjá HB unnu sinn annan leik í röð í færeysku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær. HB vann þá öruggan 3:0-útisigur á Skála.
Brynjar Hlöðversson lék allan leikinn í liði HB, sem er í 3. sæti deildarinnar með 10 stig eftir fimm leiki. HB hefur unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum sínum og ekki tapað síðan í fyrstu umferð.
Heimir er á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari utan landsteinanna en hann stýrði FH í tíu ár.