Útlit Breytingar verslananna hófust í Hagkaupi í Smáralind árið 2016.
Útlit Breytingar verslananna hófust í Hagkaupi í Smáralind árið 2016.
Ný hönnun Hagkaupsverslana í Smáralind og Kringlunni fékk á dögunum gullverðlaun í The Transform Awards Europe, fyrir bestu upplifun á vörumerki eða „Best Brand Experience“, eins og verðlaunin heita á frummálinu.

Í tilkynningu frá Hagkaupi segir að verðlaunin séu aðeins ein af mörgum viðurkenningum sem hönnunin hefur fengið síðustu misseri, en alls hefur hún verið tilnefnd til verðlauna í fjórum alþjóðlegum hönnunarkeppnum upp á síðkastið. Auk gullsins þá vann hönnunin silfur í DBA Design Effectiveness Awards fyrir áhrifamestu breytingar á verslun. Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir í tilkynningunni að um mikla viðurkenningu sé að ræða. Viðskiptavinirnir hafi auk þess tekið breytingunum vel. tobj@mbl.is