Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson
Birgir Leifur Hafþórsson lék ekki vel á síðari níu holunum á fyrsta hring á Opna spænska meistaramótinu í golfi sem fram fer í Madríd. Birgir var á pari eftir fyrri níu holurnar, en lék síðari hluta hringsins á fimm höggum yfir pari.

Birgir Leifur Hafþórsson lék ekki vel á síðari níu holunum á fyrsta hring á Opna spænska meistaramótinu í golfi sem fram fer í Madríd. Birgir var á pari eftir fyrri níu holurnar, en lék síðari hluta hringsins á fimm höggum yfir pari. Mótið er hluti af Evrópumótaröðinni, þeirri næststerkustu í heimi.

Birgir fékk þrjá skolla og einn tvöfaldan skolla á síðustu níu holunum og lék hann síðustu þrjár holur hringsins á fjórum höggum yfir pari. Birgir lék hringinn samanlagt á 77 höggum og er á meðal neðstu manna. johanningi@mbl.is