Skiptar skoðanir. A-Enginn
Norður | |
♠ÁG9632 | |
♥Á8 | |
♦10764 | |
♣7 |
Vestur | Austur |
♠D84 | ♠1075 |
♥D3 | ♥KG97642 |
♦Á83 | ♦95 |
♣D10984 | ♣2 |
Suður | |
♠K | |
♥105 | |
♦KDG2 | |
♣ÁKG653 |
Suður spilar 5♣.
Útsendari Marks Hortons fylgdist með Íslandsmótinu um helgina í leit að snúnum sagnþrautum. Hann fann þessa í síðasta leik og lagði fyrir félaga sína í Ljóngömmunum: Hvað á suður að segja við opnun austurs á 3♥?
Papa : Dobl. Til að halda þremur gröndum inni í myndinni.
Karapet: Pass. Ég er dæmdur maður.
Hérinn: 4♣. Vona að makker taki þetta ekki sem ásaspurningu.
Gölturinn: 3G. Einhver verður að axla ábyrgð.
Keppendur Íslandsmótsins gerðu eitt og annað. Þeir sem dobluðu fengu 4♠ í hausinn frá makker. Viðbúið, svo sem, en ekki skemmtilegt. Við 4♠ hlýtur suður að segja 5♣ og sýna þannig einlita hönd. Ekki gott.
Þeir keppendur sem völdu Hérasögnina 4♣ gátu með góðri samvisku (og árangri) passað 4♠ hjá makker í næsta hring. Hins vegar fara engar sögur af því að suður hafi reynt 3G, eins og Gölturinn stingur upp á. En það hefði heppnast vel.