Markelle Fultz
Markelle Fultz
Minnesota Timberwolves tryggði sér síðasta lausa sætið í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik þegar síðustu tólf leikir deildakeppninnar fóru fram í fyrrinótt.

Minnesota Timberwolves tryggði sér síðasta lausa sætið í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfuknattleik þegar síðustu tólf leikir deildakeppninnar fóru fram í fyrrinótt.

Minnesota og Denver háðu hreinan úrslitaleik um síðasta lausa sætið í úrslitakeppninni og þar hafði Minnesota betur í framlengdum leik, 112:106.

Philadelphia 76ers vann sinn 16. sigur í röð þegar liðið vann öruggan sigur gegn Milwaukee, 130:95. Markelle Fultz, leikmaður Philadelphia, varð yngsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að ná þrefeldri tvennu en þessi 19 ára gamli leikmaður skoraði 13 stig, tók 10 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.

Úrslitakeppnin hefst á laugardagskvöldið en í úrslitadálkinum á bls. 2 má sjá lokastöðuna í NBA-deildinni og hvaða lið mætast í fyrstu umferðinni.