Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir er úr leik á LOTTE-meistaramótinu, en hún lék tvo hringi á samanlagt 10 höggum yfir pari. Ólafía lék hringinn í gær á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari, en mótið fór fram á Havaí.

Ólafía náði sér hins vegar alls ekki á strik á fyrsta hringnum því hún lék hann á 81 höggi, níu höggum yfir pari. Hún bætti sig því um átta högg á milli daga en það dugði ekki til og var hún í 134. sæti þegar blaðið fór í prentun.

Ólafía fékk tvo skolla, einn fugl og 15 pör í gær.

johanningi@mbl.is