Tveir Íslendingar létust á Spáni í vikunni. Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins, Sveinn H. Guðmarsson, staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en um er að ræða tvö aðskilin dauðföll.

Sveinn segir að borgaraþjónustunni hafi borist tilkynningar vegna málanna. Að öðru leyti vildi hann ekki veita neinar upplýsingar.

Samkvæmt upplýsingum mbl.is fór maður í hjartastopp, en nánar er ekki vitað um dánarorsök.