Ljúfir tónar Með hljómsveit og kór.
Ljúfir tónar Með hljómsveit og kór.
Nýstofnaður Gospelkór Smárakirkju, Sporhömrum 3, heldur gospeltónleika kl. 20 í kvöld, föstudaginn 13. apríl í kirkjunni. Kórinn var stofnaður í febrúar og mun flytja lög úr ýmsum áttum sem hann hefur verið að æfa. Stjórnandi kórsins er Matthías V.
Nýstofnaður Gospelkór Smárakirkju, Sporhömrum 3, heldur gospeltónleika kl. 20 í kvöld, föstudaginn 13. apríl í kirkjunni. Kórinn var stofnaður í febrúar og mun flytja lög úr ýmsum áttum sem hann hefur verið að æfa. Stjórnandi kórsins er Matthías V. Baldursson (Matti sax) sem einnig stjórnar Rokkkór Íslands og Lögreglukórnum. Með kórnum verður hljómsveit skipuð þeim Hákoni Möller, Rafni Hlíðkvist Björgvinssyni, Þóri Rúnari Geirssyni, Þorbergi Ólafssyni og Matta sax.