Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar danska flughersins, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland er að hefjast að nýju með komu flugsveitar danska flughersins, segir í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni. Alls munu um 60 liðsmenn danska flughersins taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F-16 orrustuþotur. Gert er ráð fyrir aðflugsæfingum að varaflugvöllum á Akureyri og Egilsstöðum 12. til 17. apríl. Flugsveitin verður staðsett á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Ráðgert er að verkefninu ljúki um mánaðamótin apríl/maí. Verkefnið er framkvæmt af Landhelgisgæslu Íslands í samvinnu við Isavia.