Glódís Perla Viggósdóttir
Glódís Perla Viggósdóttir
Landsliðsmiðvörðurinn, Glódís Perla Viggósdóttir, kann vel við sig í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Hún varð í gær sænskur bikarmeistari annað árið í röð með liði sínu Rosengård en í úrslitaleiknum vann Rosengård lið Linköping 1:0.

Landsliðsmiðvörðurinn, Glódís Perla Viggósdóttir, kann vel við sig í sænsku bikarkeppninni í knattspyrnu. Hún varð í gær sænskur bikarmeistari annað árið í röð með liði sínu Rosengård en í úrslitaleiknum vann Rosengård lið Linköping 1:0. Glódís lék allan leikinn í liði Rosengård sem einnig lagði Linköping að velli í úrslitaleiknum á síðasta keppnistímabili. Hin danska Sanne Troelsgaard skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik og tryggði Rosengård bikarinn. kris@mbl.is