Mike Myers er til í að gera Austin Powers 4! Mike sagði í viðtali við ET á frumsýningu á spennutryllinum „Terminal“, að hann langaði að fara aftur í hlutverk breska njósnarans skemmtilega.

Mike Myers er til í að gera Austin Powers 4! Mike sagði í viðtali við ET á frumsýningu á spennutryllinum „Terminal“, að hann langaði að fara aftur í hlutverk breska njósnarans skemmtilega.

Mike Myers sagði einnig að hann langaði að gera kvikmynd frá sjónarhorni illvirkjans Dr. Evil: „Svo það væri Dr. Evil 1, Austin Powers 4, þannig mundi ég gera þetta. Byrjaðu að auglýsa. Vinsamlegast. Takk.“ Í kvikmyndinni „Terminal“, Leikur Myers kjánalegan húsvörð sem reynist vera eitthvað allt annað en kjánalegur húsvörður. Þetta er hans fyrsta hlutverk síðan hann lék lítið hlutverk í kvikmyndinni „Inglourious Basterds“ frá leikstjóranum Quentin Tarantino en sú mynd kom í sýningu árið 2009.