[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sviðsljós Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is Á föstudaginn undirrituðu fulltrúar Garðabæjar, Urriðaholts ehf., Veðurstofu Íslands og Háskóli Íslands samning um samstarf um uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvar á sviði svonefndra blágrænna regnvatnslausna.

Sviðsljós

Guðmundur Magnússon

gudmundur@mbl.is

Á föstudaginn undirrituðu fulltrúar Garðabæjar, Urriðaholts ehf., Veðurstofu Íslands og Háskóli Íslands samning um samstarf um uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvar á sviði svonefndra blágrænna regnvatnslausna. Samkvæmt samningnum verður sett upp hátækni veðurstöð í Urriðaholti, sem mun rísa sunnanmegin í holtinu á opnu svæði vestan við Kauptún. Jafnframt var undirritaður þjónustusamningur milli Garðabæjar og Veðurstofu Íslands um rekstur á veðurstöðinni,

Blágrænum regnvatnslausnunum er beitt til að draga úr álagi á fráveitukerfi og viðhalda um leið heilbrigðum og sjálfbærum vatnsbúskap. Markmiðið er margþætt og felur m.a. í sér auðveldara og ódýrara viðhald fráveitukerfa, lengri líftíma þeirra og síðast en ekki síst ávinninginn sem felst í að hleypa vatni og gæðum þess aftur inn í hið byggða umhverfi á öruggan og markvissan hátt.

Byggð umhverfis Urriðavatn er að hluta innan vatnasviðs þess. Til að koma í veg fyrir að vatnsbúskapur svæðisins raskist vegna byggðarinnar er ofanvatn frá henni meðhöndlað til að líkja eftir ferlum náttúrunnar. Í Urriðaholti var í fyrsta sinn á Íslandi beitt slíkum sjálfbærum ofanvatnslausnum í heilu hverfi. Regnvatni og snjó af þökum, götum og bílastæðum er beint í ofanvatnsrásir sem eru meðfram götum og/eða til safnlauta í grænum geirum. Þar sígur vatnið í jörðu og berst til Urriðavatns og votlendisins.

Á vef Garðabæjar er talað um fjórþættan ávinning af uppbyggingu rannsóknarmiðstöðvarinnar.

1.Veðurstöðin og búnaður henni tengdri mun skapa einstakae aðstæður til tilrauna á landsvísu. Þar eru m.a. sérhæfð tæki til mælinga vegna sjálfbærra regnvatnslausna, svo og úrkomu á 1 mínútu fresti, í fyrsta sinn á Íslandi.

2. Vísindalegar rannsóknir á virkni sjálfbærra regnvatnslausna. Þörfin fyrir blágrænar regnvatnslausnir, hérlendis jafnt sem erlendis, eykst hratt m.a. vegna áhrifa hnattrænnar hlýnunar. Þær auka seiglu bæja til að takast á við loftslagsbreytingar, hreinsa vötn, ár og læki, grænka borgir og auka líffræðilegan fjölbreytileika þeirra. Síðast en ekki síst þá sýnir reynslan að þær eru hagkvæmari en þær hefðbundnu.

3. Langtímavöktun á veðurfari sem innifelur þætti sem skipta sköpum í fráveituhönnun, t.d. regn, hiti, sólarorka og snjóalög.

4. Miðlun veðurfarsgagna til þeirra rannsakenda sem áhuga hafa á nákvæmum veðurfarsgögnum af höfuðborgarsvæðinu. Einnig til nemenda og íbúa í Urriðaholti, svo og áhugasamra aðila almennt.

Ástæðan fyrir því að Urriðaholt varð fyrir valinu er sú að það er fyrsta hverfið þar sem blágrænar regnvatnslausnir voru innleiddar sem aðallausn á ofanvatni til verndar Urriðavatni. Það er einnig fyrsta hverfið á heimsvísu þar sem blágrænar regnvatnslausnir hafa verið innleiddar á jafn norðlægri breiddargráðu og í jafn miklum landhalla. Hverfið þykir eftirbreytnivert alþjóðlegt dæmi um farsæla innleiðingu þeirra og hefur þegar vakið athygli vegna þessa. Því þótti kjörið að nýta Urriðaholtið sem rannsóknarvettvang fyrir vísindalegar rannsóknir á blágrænum regnvatnslausnum, og miðla niðurstöðum úr þeirri vinnu jafnt innan- sem utanlands.