Ökutæki Sala bifreiða gæti dregist saman ef ekki verður brugðist við.
Ökutæki Sala bifreiða gæti dregist saman ef ekki verður brugðist við. — Morgunblaðið/Ómar
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Bílgreinasambandið hefur þrýst á íslensk stjórnvöld frá því í vetur að gera ráðstafanir til þess að draga úr fyrirsjáanlegri hækkun á verði bifreiða vegna nýs mengunarmælikvarða Evrópusambandsins.

Guðrún Erlingsdóttir

ge@mbl.is

Bílgreinasambandið hefur þrýst á íslensk stjórnvöld frá því í vetur að gera ráðstafanir til þess að draga úr fyrirsjáanlegri hækkun á verði bifreiða vegna nýs mengunarmælikvarða Evrópusambandsins. Þetta segir Jón Trausti Ólafsson, formaður sambandsins. Hann fagnar nýjum og réttlátari mengunarmælikvarða en gagnrýnir stjórnvöld fyrir seinagang í aðgerðum til þess að mæta hækkunum sem nýjum mælikvarða fylgir. Jón Trausti telur að of seint sé að bregðast við væntanlegri 10 til 15% hækkun á innfluttum bílum 1. september en stjórnvöld geti gripið til aðgerða til þess að koma í veg fyrir aðra slíka hækkun í byrjun janúar og jafnvel gert ráðstafanir til þess að leiðrétta væntanlega hækkun í september. Evrópusambandið hefur hvatt aðildarríkin til þess að gera ráðstafanir til að sporna við hækkunum. Danir munu lækka tolla og Svíar fresta gildistöku til 2020.