Ingibjörg Árnadóttir hjúkrunarfræðingur fæddist 26. september 1935 á Brimilsvöllum á Snæfellsnesi. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð 6. maí 2018.

Hún var dóttir Árna Kristins Hanssonar húsasmíðameistara, f. 5.12. 1907, d. 2006, og eiginkonu hans Helgu Tómasdóttur húsmóður, f. 24.9. 1908, d. 1990.

Systur Ingibjargar eru Björg Ragnheiður, f. 1931, gift Ármanni J. Lárussyni, sem er látinn, og Ragnheiður Dóróthea, f. 1. september 1939, d. 23. maí 2013. Ragnheiður var gift Braga Sigurjónssyni bifvélavirkjameistara.

Eiginmaður Ingibjargar var Jón Ólafsson, húsgagna- og innanhússarkitekt og kennari, f. í Reykjavík 29. apríl 1938, d. 6. desember 2016.

Börn og barnabörn Ingibjargar og Jóns eru: 1) Guðný Sif, f. 22. maí 1962. Maki Halldór Eyþórsson, f. 19. maí 1959. Sonur hennar og Áka Snorrasonar: Snorri Freyr, f. 1987. Maki Margrét Lilja Gunnarsdóttir, börn þeirra Ragnar Aage, f. 2009, og Adda Sif, f. 2011. Sonur Guðnýjar og Halldórs: Eyþór Jakob, f. 1994. 2) Tómas Árni, f. 28. nóvember 1963. Maki María Jónsdóttir, f. 7. nóvember 1962. Börn: Jón Arnar, f. 1990, og Ingibjörg, f. 1993. 3) Helga Aðalheiður, f. 24. desember 1968. Maki Guðmundur Vilhjálmsson, f. 2. september 1967. Börn: Ingibjörg Ásta, f. 1996, Laufey Sigríður, f. 1999, og Vilhjálmur, f. 2003.

Útför Ingibjargar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 15. maí 2018, kl. 13.

Kraftmikla, duglega, hjálpsama mamma mín sem vildir allt fyrir alla gera.

Ég kveð þig með virðingu og þakklæti og minnist margra góðra stunda.

Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð,

hjartans þakkir fyrir liðna tíð,

lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,

leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.

(Guðrún Jóhannsdóttir)

Innilegar þakkir til allra þeirra sem léttu henni lífið og önnuðust hana af nærgætni og umhyggju hennar síðustu mánuði.

Þín dóttir,

Guðný Sif Jónsdóttir.

Elsku mamma og tengdamamma, þú sem hafðir alltaf tröllatrú á manni, varst óspör á hrós og hvatningu, alltaf umhugað um að okkur liði vel og aldrei í rónni fyrr en allir voru „komnir heilir heim“. Nú ert þú fallin frá eftir stutta en snarpa baráttu við illvígan sjúkdóm.

Við minnumst þín með þakklæti fyrir allt það sem þú gerðir fyrir okkur. Ósérhlífin, gjafmild, fyndin, orðheppin, skemmtileg, hrífandi, ákveðin og áræðin. Í norræna samstarfinu hjá Hjúkrunarfélaginu vílaðir þú ekki fyrir þér að taka á móti norrænum hjúkrunarfræðingum, halda ræður og stjórna veislum. Á yngri árum varstu um tíma annar helmingur upphitunarpars á dansstað í Reykjavík og þar má segja að persónutöfrar þínir hafi notið sín; þú áttir auðvelt með að „fá fólk út á dansgólfið“ með þér.

Þú varst óhrædd við breytingar og að taka að þér ábyrgðarstörf. Ritstjóri, skurðhjúkka og hjúkrunarforstjóri voru meðal þeirra starfa sem þú gegndir.

Svo sannarlega varstu einnig hrókur alls fagnaðar eins og þegar þú tókst áskorun, spilaðir á gítar og jóðlaðir: „Ólafía, hvar er Vigga?“ með systrum þínum við mikla hrifningu viðstaddra. Var þetta með best heppnuðu skemmtiatriðum sem um getur!

Florence Nightingale og Pollýanna eru nöfn sem koma upp í hugann er við minnumst þín því þú varst svo sannarlega hjúkrunarkona fram í fingurgóma, vildir vel og gafst ráð af heilum hug. Við erum þér eilíflega þakklát fyrir fordómalaust viðhorf þitt til fjölbreytileika mannlífsins og það að koma heiðarlega fram, algjörlega laus við hroka.

Takk.

Helga og Guðmundur.

Ég á margar minningar um góðar stundir með ömmu Ingu. Sem barn er mér minnisstætt að koma í heimsókn til ömmu í Hrauntunguna sem mér þótti vera alger töfraveröld.

Þar var fullt af herbergjum á tveimur hæðum. Garðskálinn á neðri hæðinni var fullur af alls konar plöntum og þar var hengistóll sem mér þótti frábær. Það voru alls konar spennandi hlutir í bílskúrnum eins og til dæmis hlaupahjólið stóra sem ég fékk að nota. Flotta glasið með fuglamyndunum sem ég fékk að eiga og nota á meðan ég var í heimsókn og líka þegar öll fjölskyldan kom í matarboð. Þar kynntist ég plötuspilara og vínilplötum og þar brösuðum við ýmislegt saman.

Mér er minnisstætt að amma miklaði ekki fyrir sér að breyta til, prófa nýja hluti og flytja jafnvel á mismunandi staði til að búa um tíma og starfa. Ég á góðar minningar af ferðum til Danmerkur þar sem Árni langafi kom einu sinni með og við áttum öll dýrmætar stundir.

Mér er einnig minnisstæður tími þar sem amma flutti til Vestmannaeyja og keypti sér hálfgert millistig af vespu og skellinöðru sem hún ætlaði sér að nota til þess að ferðast um eyjuna. Hún fékk aðstoð við að koma hjólinu í gang í búðinni og keyrði það heim en kom því svo aldrei aftur í gang svo það var ekki notað mikið en hugurinn og þorið var heldur betur til staðar.

Amma var alltaf til í að takast á við ný ævintýri og vil ég trúa því að nú sé hún komin á góðan stað þar sem hún lifir áfram, býr á spennandi eldfjallaeyju, þeysist um á mótorfáki og spilar á trommur.

Amma Inga mun lifa áfram í huga mínum í gegnum allar þær minningar sem við eignuðumst saman.

Snorri Freyr Ákason.

Inga frænka mín, systir ömmu Bjargar, var mér bæði kær og góð. Hún gekk gjarnan undir heitinu „ljósan okkar“ enda var hún viðstödd fæðingu mína og síðar bræðra minna. Ég var eitthvað treg til að mæta á svæðið og kostaði bæði mömmu mína og Ingu frænku mikil átök en hún greiddi það gjald samt með gleði enda var hlýtt á milli hennar og mömmu. Ég man vel eftir fallega heimilinu þeirra Jóns í Hrauntungunni. Þar fannst mér spennandi að vera og skoða mig um; hringstiginn, gróðurhúsið með hangandi baststólnum, fiskabúrið og fleira vöktu hrifningu mína og athygli. Einu sinni fékk ég að gista og ég man enn að hún las fyrir mig Köttinn með höttinn sem ég hafði ekki heyrt áður. Ég fékk líka að fara einu sinni með þeim hjónum að Börmum og það var ævintýraferð fyrir borgarbarnið. Þar lagaði hún te úr fjallagrösum sem mér leist nú ekkert á en það vakti líka athygli mína og opnaði mér sýn inn í annan heim. Það var margt í fari Ingu sem var athyglisvert og ég mun varðveita með mér; persónuleiki hennar, umhyggja hennar gagnvart mér og mínum og hvernig hún kunni að meta fallega og listræna hluti. Þær systur; amma, Heiður og Inga, voru auðvitað frábært þríeyki og það var unun og skemmtun að fylgjast með þeim spila og syngja saman. „Svona er að elska dóttur Árna Hans“ enduðu þær eitt lagið með stæl og glensi en þær höfðu breytt textanum í þekktu lagi til að lýsa því hversu stórkostlegar þær sjálfar væru. Þetta voru áhugaverðar systur sprottnar úr margbrotnum jarðvegi sem skilaði sér í fasi þeirra og hegðun. Nú er amma mín ein þeirra eftir og sér á eftir fallegu systrum sínum. Ég vil votta allri fjölskyldu Ingu samúð mína og bið Guð að sefa sorg og söknuð. Ég mun ætíð minnast hennar.

Björg Ragnheiður

Pálsdóttir.

Það er sárt að kveðja Ingu. Ég kynntist henni þegar ég kom inn í fjölskylduna fyrir tólf árum. Ég mun alltaf minnast þess hversu hugrökk og einstök hún var. Hún var virk í stjórnmálum og var oft mjög gaman að ræða þau við hana, þótt við höfum nú sjaldnast verið sammála. En það að berjast fyrir trú sinni og sannfæringu í öllu sem hún tók sér fyrir hendur gerði hana að svo flottri konu.

Inga var einstaklega elskuleg. Hún var alltaf umhyggjusöm, spurði fregna þegar maður hitti hana og ég fann hversu gaman henni þótti að fylgjast með okkur Snorra koma upp heimili og ala börnin okkar upp. Langömmubörnin hennar eru líka heppin að hafa átt hana að enda mætti hún á alla viðburði sem henni var boðið í og taldi það ekki eftir sér að ferðast á milli landshluta til að koma í skírn, útskrift eða brúðkaup en það erum við Snorri einstaklega þakklát fyrir og var alls ekki sjálfgefið.

Ég mun minnast Ingu með hlýhug og virðingu.

Margrét Lilja

Gunnarsdóttir.

Elsku Ingibjörg. Ekki grunaði okkur þegar við fórum í skíðaferð til Val di Fiemme í byrjun árs 2002 að þar myndum við hitta fyrir manneskju sem ætti eftir að verða jafn stór hluti af lífi okkar og raun bar vitni. Þegar skíðaferðinni lauk héldum við góðu sambandi og þú varðst fljótlega okkar besti og kærasti sameiginlegi vinur.

Elsku vinkona, í gegnum árin eru tónleikarnir, ferðalögin, leikhúsferðirnar og matarboðin á báða bóga orðin óteljandi. Það var einstaklega gaman að sækja þig heim enda varstu framúrskarandi kokkur, gestrisin og glaðlynd. Á þeim kvöldum var yfirleitt alltaf fiskur á borðum og margt spjallað og mikið hlegið. Þú lifðir áhugaverðu lífi og hafðir starfað víða, bæði innanlands og erlendis, og það var einstaklega gaman að heyra þig segja frá reynslu þinni og hlusta á sögur af þér og samferðafólki þínu. Þú hafðir einstaklega gott minni, mundir dagsetningar og atburði eins og þeir hefðu gerst í gær. Aldrei heyrðum við þig hallmæla neinni manneskju og þú reyndir alltaf að sjá það jákvæða í öllu því sem lífið bauð upp á hverju sinni. Við ræddum um ferðalög, myndlist, leiklist, tónlist og auðvitað skeggræddum við þjóðmálin. Engu máli skipti hvort við vorum sammála eða ekki og ef við náðum ekki sameiginlegri lendingu hlógum við bara að þvermóðskunni og snerum okkur að næsta umræðuefni. Þú hafðir einstaklega skemmtilega kímnigáfu og varst fljót að átta þig á hvenær rætt var í alvöru og hvenær um spaug var að ræða og spilaðir með. Staðföst og alltaf réttlát. En við gátum einnig rætt saman á alvarlegri nótum og ef eitthvað bjátaði á varst þú ávallt boðin og búin til hjálpar.

Elskuleg, í gegnum árin höfum við eignast margar dásamlegar minningar en einnig hefur þú fært okkur og sent marga skemmtilega og óvænta hluti. Ein gjöf sem þú færðir okkur er okkur sérstaklega hjartfólgin. Það eru tveir litlir handgerðir englar sem þú gafst okkur í tilefni jólanna fyrir nokkrum árum. Þessir englar hafa síðan þá, líkt og þú, skipað sérstakan sess í hjörtum okkar og jólahaldi. Síðastliðin sextán ár hefur þú verið hjá okkur í kvöldmat á öðrum degi jóla ef frá eru talin síðustu jól þegar þú dvaldir á sjúkrahúsi vegna veikinda. Það verða einmanaleg jól hjá okkur tveimur án þín en annar dagur jóla mun samt sem áður alltaf verða tileinkaður þér og við eigum englana tvo til að minna okkur á allar yndislegu samverustundirnar.

Elsku Ingibjörg, við vitum að fjölskyldan var þér allt í þessu lífi og missir hennar er mikill. Þú varst umhyggjusöm og stolt móðir, tengdamóðir, amma og langamma. Sú ást og virðing sem ávallt kom fram til afkomenda þinna, foreldra, systra og tengdafólks í frásögn þinni var einstök.

Við vottum þeim Guðnýju Sif, Tómasi Árna, Helgu Aðalheiði og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Þeirra missir er mikill. Þér þökkum við af öllu hjarta dásamlega vináttu, einstaka umhyggju og skemmtilegar samverustundir í gegnum árin. Þú munt ávallt eiga þinn stað í hjörtum okkar, elsku vinkona. Við söknum þín sárt.

Þínir vinir,

Jón Sigurðsson og Steindór Kristinn Ívarsson.