Guðjón Pétur Lýðsson
Guðjón Pétur Lýðsson
Guðjón Pétur Lýðsson er á förum frá Íslandsmeisturum Vals í knattspyrnu en lokað verður fyrir félagaskipti á miðnætti í kvöld.

Guðjón Pétur Lýðsson er á förum frá Íslandsmeisturum Vals í knattspyrnu en lokað verður fyrir félagaskipti á miðnætti í kvöld. Guðjón Pétur, sem er þrítugur miðjumaður, sagðist við RÚV í gær vilja yfirgefa Val vegna óánægju með þann spilatíma sem hann fengi hjá liðinu.

Edvard Börkur Edvardsson, formaður meistaraflokksráðs karla hjá Val, staðfesti við Morgunblaðið seint í gærkvöldi að félagið hefði samþykkt tilboð tveggja félaga í leikmanninn; bikarmeistara ÍBV og KA. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins eru hins vegar fleiri félög með Guðjón í sigtinu.

Núgildandi samningur Guðjóns við Val átti að renna út í haust.

sindris@mbl.is