Hetjurnar í kvikmyndinni Avengers – Infinity War sitja á toppi listans yfir bestu aðsókn helgarinnar í kvikmyndahúsunum, rétt eins og í liðinni viku.
Hetjurnar í kvikmyndinni
Avengers – Infinity War
sitja á toppi listans yfir bestu aðsókn helgarinnar í kvikmyndahúsunum, rétt eins og í liðinni viku. Miðar hafa verið seldir á myndina fyrir meira en tólf milljónir króna og hafa tæplega 49 þúsund manns séð hana. Gamanmyndin
I Feel Pretty
með leikkonunni Amy Schumer er ný á lista en stekkur beint upp í annað sætið og fellir
Varg
, spennumynd Barkar Sigþórssonar niður í það þriðja en 3.600 manns hafa séð
Varg
.