Sjaldgæfur Víxlnefur sást fyrst hér á landi árið 2009 og sást í þriðja skipti á Selfossi á föstudaginn. Fuglinn er af finkutegund og er einn fjögurra finka í Evrópu sem eru með krosslögð nef. Krossnefur er þeirra útbreiddastur.
Sjaldgæfur Víxlnefur sást fyrst hér á landi árið 2009 og sást í þriðja skipti á Selfossi á föstudaginn. Fuglinn er af finkutegund og er einn fjögurra finka í Evrópu sem eru með krosslögð nef. Krossnefur er þeirra útbreiddastur. — Ljósmynd/Alex Máni Guðríðarson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ýmissa sjaldgæfra fugla hefur orðið vart á landinu síðustu daga þó svo að allir hafi þeir sést áður hérlendis.

Ágúst Ingi Jónsson

aij@mbl.is

Ýmissa sjaldgæfra fugla hefur orðið vart á landinu síðustu daga þó svo að allir hafi þeir sést áður hérlendis. Nefna má víxlnef á Selfossi, kanaduðru sem sást við Mývatn, svölustelk í Sandgerði, fitjatítu við Hvalsnes á Reykjanesi og til viðbótar má nefna að veimiltíta sást á Eyrarbakka. Yann Kolbeinsson, fuglafræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands, segir vorið hafa verið líflegt fyrir fuglaáhugamenn og talsvert af skemmtilegum fuglum hafi komið til landsins.

Við fyrrnefnda fugla bætir Yann tegundum eins og laufglóa sem sást í Nökkvavogi í Reykjavík á sunnudag, en hann hafði aðeins sést 12 sinum áður á landinu. Gjóður sást í Grímsey í síðustu viku, en það er lítill ránfugl sem veiðir fiska sér til matar og grípur þá rétt undir yfirborði, stundum eru fiskarnir býsna stórir miðað við stærð fuglsins. Í Miðskeri í Nesjum sást trjástelkur í gær, en innan við 10 fuglar hafa sést á Íslandi af þeirri tegund. Greint er frá heimsóknum sjaldgæfra fugla á fuglar.is. en einnig á facebook.com/birdingiceland.

Litmerktur jaðrakan

Á heimasíðu Náttúrustofu Vestfjarða er fjallað um litmerkingar fugla og heimsókn jaðrakans sem merktur var í Portúgal. Þar segir að fuglar séu litmerktir til að auðveldara sé að fylgjast með ferðum þeirra og lífsháttum. Hver fugl beri einstaka samsetningu lithringja eða litflagga og megi þekkja þá á löngu færi án þess að ná þeim aftur.

Jaðrakan sem sást til 7. maí í Bolungarvík sé slíkt dæmi, en fuglinn var merktur í Portúgal í nóvember 2011. Síðan þá hefur sést til hans nokkrum sinnum í Portúgal, einu sinni í Hollandi og síðast tvisvar í Vorsabæ í Árnessýslu vorið 2017. Ekki hefur sést til hans á Vestfjörðum fyrr en núna, segir á síðunni nave.is

Á vef Náttúrustofu Austurlands er m.a. fjallað um kjarnbít, en þessi flækingsfugl hefur sést í Neskaupstað og á Stöðvarfirði í vor. Þar er greint frá því að kjarnbítur hafi fyrst sést hér á landi í Hornafirði 20. apríl 1975, en í vor hafa sést 5-6 fuglar af tegundinni, sem er óvenju mikið.