Barátt a Frambjóðendur í Reykjavík sátu fyrir svörum kennara í Kennarafélagi Reykjavíkur í Laugalækjarskóla.
Barátt a Frambjóðendur í Reykjavík sátu fyrir svörum kennara í Kennarafélagi Reykjavíkur í Laugalækjarskóla. — Morgunblaðið/Valli
Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is „Það er ný aðferð að leggja krossapróf fyrir frambjóðendur á opnum fundi.

Guðrún Erlingsdóttir

ge@mbl.is

„Það er ný aðferð að leggja krossapróf fyrir frambjóðendur á opnum fundi. Alla vega hef ég ekki séð það gert áður,“ segir Jón Ingi Gíslason, formaður Kennarafélags Reykjavíkur sem stóð fyrir baráttufundi kennara með frambjóðendum í Reykjavík í Laugalækjarskóla í gærkvöldi.

„Það er eðlilegt þegar kennarar eru annars vegar að leggja fyrir krossapróf. En að öllu gamni slepptu þá notuðum við þessa aðferð til þess að kalla fram einhverja punkta sem fundargestir gætu spurt nánar út í og frambjóðendur útskýrt svör sín betur,“ segir Jón Ingi sem vonar að frambjóðendur hafi fengið gott veganesti frá fundargestum.

Kvennahreyfingin ákvað eftir ítarlega yfirferð að þiggja ekki boð um þátttöku á fundinum í ljósi þess að Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambandsins sem flutti opnunarerindi fundarins, tók ekki áskorun um að víkja sem formaður Kennarasambandsins vegna ásakana um blygðunarsemisbrot.

„Ég hef ekki séð yfirlýsingu Kvennahreyfingarinnar enda á fullu að undirbúa fundinn. Við erum að halda fund fyrir þá frambjóðendur sem vilja koma og skýra fyrir kennurum hvernig þeir vilja haga málum hér í Reykjavík komist þeir til valda. Þeir sem ekki hafa áhuga á að mæta þeir bara mæta ekki,“ segir Jón Ingi.

Frambjóðendur voru m.a. spurðir hvort þeir styddu 100.000 kr. launauppbót á mánuði fyrir grunnskólakennara í Reykjavík, minni miðstýringu, aukið sjálfstæði og valdeflingu skóla og kennara og hvort 26 tímar á viku í kennslu og undirbúning teldust fullt starf.