Sagt er frá því í fréttum að Ríkisútvarpið hafi gert samning við mann sem hafði stefnt RÚV og nánar tilgreindum fréttamönnum fyrir dóm vegna ærumeiðinga.

Sagt er frá því í fréttum að Ríkisútvarpið hafi gert samning við mann sem hafði stefnt RÚV og nánar tilgreindum fréttamönnum fyrir dóm vegna ærumeiðinga. Mun þessi ríkisstofnun hafa fallist á að greiða manninum 2,5 milljónir króna gegn því að hann felldi dómsmálið niður. Fjallað var um þetta í ritstjórnargrein Morgunblaðsins í gær, 14. maí.

Í samningi milli aðila er tekið fram að í honum felist hvorki viðurkenning á bótaskyldu af hendi RÚV og/eða einstakra starfsmanna sem stefnan tók til.

Og þá skal spurt:

Hvernig getur stofnun ríkisins greitt mönnum háar fjárhæðir í bætur án bótaskyldu? Og hvernig má það vera að stofnunin greiði kostnað og bætur fyrir hönd einstakra starfsmanna sinna?

Telja fyrirsvarsmenn RÚV að þeim sé heimilt að úthluta fé úr sjóðum þess eftir geðþótta sínum?

Höfundur er lögmaður.