Hafnarhlaup Enginn er verri þó hann vökni, stendur þar, og ósjaldan á það betur við en á sjómannadaginn.
Hafnarhlaup Enginn er verri þó hann vökni, stendur þar, og ósjaldan á það betur við en á sjómannadaginn. — Ljósmynd/Helgi Hjálmtýsson
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Sjómannadagurinn í Bolungarvík á sér langa og merka sögu. Sjómannadagshelgin er einn af stóru menningarviðburðunum í bænum ár hvert enda er Bolungarvík ein elsta verstöð landsins, segir Helgi Hjálmtýsson, markaðs- og kynningarfulltrúi Bolungarvíkur.

Jón Agnar Ólason

jonagnar@mbl.is

Sjómannadagurinn í Bolungarvík stendur yfir í fjóra daga og lýkur á sunnudegi sem er hinn eiginlegi sjómannadagur,“ útskýrir Helgi. „Yfir sjómannadagshelgina er boðið upp á fróðleik og skemmtun fyrir íbúa og gesti. Það eru þó einungis þrjú atriði sem hafa alltaf verið í boði í tengslum við sjómannadaginn í Bolungarvík en þau eru skrúðganga frá Brimbrjótnum að Hólskirkju, hátíðarguðsþjónustan í Hólskirkju og sjómannadagsballið. Áður fyrr var ballið á sunnudeginum en fyrir löngu hefur það færst yfir á laugardag meðan skrúðgangan og hátíðarguðsþjónustan hafa haldið áfram á sjálfan sjómannadaginn.“ Hann bætir því við að sjómannadagurinn í ár er sá 79. sem haldið er upp á í Bolungarvík.

Þuríðardagurinn til alls fyrstur

Sjómannadagshelgin í Bolungarvík í ár hefst, líkt og venja hefur verið síðastliðin ár, með Þuríðardeginum sem er haldinn fimmtudaginn fyrir sjómannadag til heiðurs formóðurinni, Þuríði sundafylli, sem seiddi fiskinn í Djúpið sem hefur verið lífsbjörg Bolvíkinga og íbúa við Djúp um aldir.

„Markmiðið með Þuríðardegi er að gera landnámskonu Bolungarvíkur sýnilegri og tengsl hennar við sjávarfang og sjávarútveg og minnast kvenna í Bolungarvík allt frá landnámi fram á þennan dag,“ segir Helgi um viðburðinn. „Þuríðardagurinn samanstendur af erindum um konur og störf þeirra og ýmsum skemmtiatriðum. Ávarp flytur Sigríður Hulda Guðbjörnsdóttir, nýkjörinn bæjarfulltrúi, og meðal erinda í ár er umfjöllun um Bjöggu vatnsbera sem hét Aðalbjörg Þórðardóttir og hafði atvinnu af því að bera vatn til bolvískra heimila um skeið, en Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur segir sögu hennar. Nemendur frá Tónlistarskóla Bolungarvíkur flytja tónlist milli atriða undir stjórn Tuuli Rähni en það er Guðrún Stella Gissurardóttir forstöðumaður sem heldur utan um dagskrá og býður gestum Þuríðardagsins upp á léttar veitingar úr ríki hafsins. Þuríðardagurinn er haldinn 31. maí og hefst dagskrá kl. 20.00 í Félagsheimili Bolungarvíkur og eru allir velkomnir.“

Sagan í heiðri höfð á söfnum

Föstudaginn 1. júní hefst föst sumarviðvera í Ósvör sem er afar vinsælt sjóminjasafn sem samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, fiskreit og þurrkhjalli. Á meðal sýningagripa er áraskipið Ölver sem gefur góða mynd af þeim skipum sem notuð voru til fiskveiða fyrr á öldum.

„Í safninu eru einnig til sýnis veiðarfæri og ýmis tæki og tól sem notuð voru við veiðar og fiskverkun á öldum áður. Safnvörðurinn tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum líkum þeim er íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr og lýsir því sem fyrir augu ber.“

Á sama tíma verður einnig opnað Náttúrugripasafn Bolungarvíkur þar sem spendýrum og fuglum á Íslandi eru gerð góð skil en einnig má þar finna ýmsa flækinga. Þegar inn er komið er gestum heilsað af blöðrusel og hvítabjörn er ekki langt undan, umkringdur selum, refum og minkum. Í safninu er einnig steinasafn Steins Emilssonar sem lengi var skólastjóri í Bolungarvík en náttúrugripasafnið er tileinkað honum. „Hægt er að kaupa sameiginlegan aðgang að náttúrugripasafninu og sjóminjasafninu en frítt er í Ósvör á sjálfan sjómannadaginn,“ bendir Helgi á.

Dorgveiðikeppni, tónleikar og skrúðganga til heiður hetjum

Það sem eftir lifir af hinni löngu sjómannadagshelgi er stöðugt eitthvað um að vera og engum í Bolungarvík þarf að leiðast, eins og sést þegar dagskráin er skoðuð.

„Dorgveiðikeppni hefst á Brimbrjótnum á föstudeginum 1. júní kl. 17.00 fyrir krakka á öllum aldri og verða verðlaun í boði fyrir afla, fjölda fiska og fleira. Margir fiskanna sem veiðast fara síðan á sædýrasýningu sem verður við hafnarvogina en þar verður hægt að sjá ýmsa fiska synda um í sjóbúrum,“ segir Helgi.

Á föstudagskvöldinu verður mikið um að vera í Einarshúsi við höfnina því kl. 18.00 hefst Þorskurinn sem er tónlistarhátíð þar sem ýmsir koma fram og boðið er upp á fiskihlaðborð og er ráðlegt að panta sér borð í Einarshúsi þetta kvöld. Kvöldinu lýkur svo með tónleikum Bjartmars Guðlaugssonar en hann er flestum að góðu kunnur fyrir tónlist sína og ef til vill hefur hann týndan tíma í farteskinu. Tónleikar Bjartmars hefjast kl. 22.00.

Laugardagurinn hefst kl. 10.00 með hátíðarsiglingu til móts við ísfirsku skipin úti á Djúpinu en að þessu sinni mun varðskipið Týr taka þátt í siglingunni og verður til sýnis síðar um daginn. Hin eiginlega sjómannadagsdagskrá hefst svo kl. 13.30 með kappróðri, flekahlaupi, koddaslag og fleiri skemmtilegum leikjum og uppákomum. Sveppi og Villi bregða á leik kl. 15.00 og deginum lýkur með hátíðarkvöldverði í Félagsheimili Bolungarvíkur og Sálinni hans Jóns míns á sjómannadagsballi.

Sjálfur sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn hefst svo með skrúðgöngu frá Brimbrjótnum að Hólskirkju kl. 13.30 og svo hátíðarguðsþjónustu í kjölfar hennar.

„Við það tækifæri verða bolvískir sjómenn heiðraðir og að lokinni guðsþjónustu verða blómsveigar lagðir að minnismerkjum sjómanna í Grundarhólskirkjugarði. Kaffisala kvennadeildar Landsbjargar hefur alltaf verið vel sótt og verður hún í Félagsheimili Bolungarvíkur kl. 15.00. Kómedíuleikhúsið sýnir Einars leik Guðfinnssonar í Einarshúsi kl. 17.00 en í ár eru liðin 120 ár frá fæðingu Einars Guðfinnssonar hinn 17. maí 1898 og var leikurinn saminn og settur upp af því tilefni. Einar Guðfinnsson er eini heiðursborgari Bolungarvíkur og á minnisvarða um hann og Elísabetu Hjaltadóttur, konu hans, er letruð tilvitnun til hans: „Ég erfði ekki fé, ég erfði dyggðir.“

Sjómannadeginum í Bolungarvík 2018 lýkur svo með því að Haukur Sigvaldason segir frá tilurð heimildamyndarinnar Brotsins sem fjallar um mannskaðaveðrið sem brast á í dymbilvikunni í byrjun apríl 1963 og tók sextán mannslíf en þar af fórust sjö Bolvíkingar í blóma lífsins. Fjallað er um slysin og afleiðingar þeirra á samfélagið en Haukur er einn af handritshöfundum og leikstjórum myndarinnar. Að lokinni umfjöllun Hauks verður myndin sýnd í Félagsheimili Bolungarvíkur. Umfjöllunin byrjar kl. 18.00.

Að sögn Helga eru viðburðirnir skipulagðir svo allir, allt frá barnafjölskyldum til eldri borgara, geti fundið sér eitthvað við hæfi

„Söfn, tónleikar, leikrit, hátíðarguðsþjónusta og heimildarmynd eru allt atriði sem ættu að höfða vel til eldri kynslóða meðan yngri kynslóðunum ætti að líka hátíðarkvöldverðurinn og ballið enda seldist upp í hvelli á kvöldverðinn sumarið áður. Yngri kynslóðirnar hafa mjög gaman af sýningum leikhópsins Lottu ekki síður en foreldrar, afar og ömmur. Þá eru börnin alltaf spennt fyrir sjómannadagsdagskránni og taka gjarnan fullan þátt í þrautum eftir því sem þau hafa vit og þroska til.“

Mikilvægi sjómannadagsins

Sjómannadagurinn á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi að sögn Helga og þá ekki síður í Bolungarvík sem hefur byggst upp á sjósókn dugandi manna.

„Án þeirra væri saga Bolungarvíkur önnur en hún er í dag. Upphaflega voru það sjómenn sem sáu um daginn en í dag er það sveitarfélagið sem skipuleggur dagskrána meðan Björgunarsveitin Ernir sér um framkvæmd og sjómönnum gefst færi á að njóta dagsins í faðmi fjölskyldu og vina. Þá er hægt að skemmta sér yfir óförum annarra sem detta kannski í sjóinn eða tapa í kappróðri eða reiptogi eða fagna með sigurvegurunum og gleðjast yfir velgengni þeirra,“ bætir hann við.

Friður og ró til að njóta dagsins

„Mín upplifun af sjómannadeginum snýst fyrst og fremst um að upplifun gestanna verði í einhverju samræmi við væntingar. Í því sjónarspili á veðrið alltaf stórleik og hefur mest um það að segja hvernig fer,“ segir Helgi um stóra daginn framundan og um leið helgina alla. „Það er reyndar gömul saga og ný hér í Bolungarvík og víðar. Það er helst í hátíðarguðsþjónustunni sem gefst friður og ró fyrir mig til að njóta dagsins og það verður ánægjulegt að geta tekið þátt í því að heiðra bolvíska sjómenn í guðsþjónustunni. Annars væri gaman að heyra erindin og tónlistina á Þuríðardeginum og ég er nokkuð spenntur fyrir Einars leiknum sem hefur verið sýndur nokkrum sinnum hér og látið hefur verið vel af. Einnig vil ég gjarnan heyra Hauk Sigvaldason segja frá Brotinu og sjá myndina á eftir en þegar ég var 5 ára gamall fórst bróðir minn, Guðmundur Hrómundur Hjálmtýsson, með Sæfara BA 143 frá Tálknafirði í ársbyrjun 1970 en hann var þá 18 ára gamall. Þeir voru sex sem fórust og Mummi var yngstur.“

Það er þó eitt sem allir, stórir sem smáir, ungir sem aldnir, geta sameinast um að sé alltaf jafn skemmtilegt, og það hefur meira að segja veðrið lítið um að segja, bendir Helgi á, en það er heimsókn í sundlaug Bolungarvíkur. „Fátt er jafn vinsælt í Víkinni fögru og nágrannabyggðum og sundlaugin og íþróttahúsið. Þessum vinsældum hefur bæjarstjórnin ákveðið að mæta með því að hafa opið lengur en sundlaugin og íþróttahúsið verða opin í sumar á virkum dögum frá kl. 6 til kl. 22 og um helgar frá kl. 10 til kl.18. Geri aðrir betur!“