Þekking Börnin geta fengið að skoða fiskana í návígi.
Þekking Börnin geta fengið að skoða fiskana í návígi.
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Gestir geta fengið að smakka dýrindis fiskisúpu, skemmt sér í hoppuköstulum og horft á spræka skemmtikrafta á fjölskylduhátíð á besta stað úti á Granda.

Ásgeir Ingvarsson

ai@mbl.is

Hjá HB Granda hefur skapast sú skemmtilega hefð að efna til veglegrar fjölskylduhátíðar úti á Granda á sjómannadaginn. Hátíðin hefur öðlast ákveðinn sess í bæjarlífinu og segir Kristín Helga Waage að árlega leggi að jafnaði 10-12.000 manns leið sína til félagsins vegna dagskrárinnar.

Kristín Helga er aðstoðarmaður forstjóra hjá HB Granda og einn af skipuleggjendum viðburðarins. „Hátíðin hóf göngu sína í þessari mynd árið 2013 og hefur verið með svipuðu sniði síðustu árin,“ segir Kristín Helga en fjölskylduhátíðin breiðir úr sér um athafnasvæði HB Granda. Viðburðurinn er haldinn samhliða Hátíð hafsins, sem Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð standa fyrir, og margir sem ýmist byrja eða enda heimsókn í miðborgina á sjómannadaginn hjá HB Granda.

Skemmtikraftar á hálftíma fresti

„Svæðið verður opnað kl. 13 og hefjast skemmtiatriðin kl. 14 þegar leikhópurinn Lotta stígur á svið. Þau munu bæði skemmta á sviði og vera á vappi um svæðið og sitja fyrir á myndum með krökkunum,“ segir Kristín Helga en á eftir leikhópnum taka við ný skemmtiatriði á hálftíma fresti. „Sjómannadagsfiskarnir heimsækja okkur í fyrsta skipti kl. 14.30. Ætla þeir að skemmta börnunum, syngja með þeim og fræða þau um fiskana í sjónum.“

Rapparinn Góði úlfurinn, sem slegið hefur í gegn hjá unga fólkinu, mætir á svæðið kl. 15 og tekur nokkur lög. „Svo koma JóiPé og Króli og syngja allt þar til dagskránni lýkur kl. 16,“ segir Kristín Helga en leikaratvíeykið Jóel og Tryggvi mun kynna viðburðinn.

Auk skemmtiatriðanna verður margt um að vera fyrir börnin og geta þau leikið í leiktækjum eins og þau lystir. „Að vanda bjóðum við líka upp á veitingar, s.s. heita fiskisúpu, kökur, kleinuhringi og grillaðar pylsur og geta allir fengið sér,“ segir Kristín Helga. „Það myndast alltaf mjög hátíðleg stemning og gaman að sjá hvað krakkarnir eru kátir.“

Til viðbótar við leiktækin, skemmtiatriðin og veitingarnar fá gestir líka að líta um borð í nýjustu skipin í flota HB Granda. „Tvö ný skip verða opin og gefst fólki kostur á að skoða sig um bæði í borðsal þeirra og brú.“

Lifandi bæjarhluti

Margt er um manninn í kringum Reykjavíkurhöfn á sjómannadag og segir Kristín Helga að svæðið muni iða af lífi. „Hér er margt að sjá, og mikil hátíðahöld. Úti á Granda hafa líka sprottið upp verslanir og veitingastaðir sem gaman er að sækja heim, og vert að vekja sérstaka athygli á Marshallhúsinu þar sem finna má bæði frábæran veitingastað og listarými sem verða opin á sunnudag.“

Kristín Helga brýnir fyrir gestum að leggja bifreiðum fyrir utan hafnarsvæðið eða taka strætó niður í bæ. „Umferðin í hjarta miðborgarinnar getur orðið þung á sjómannadaginn og ekki alltaf að því hlaupið að finna laust bílastæði næst hátíðahöldunum,“ segir hún. „Biðjum við gesti líka um að hjálpa okkur að ganga vel um svæðið, en í samræmi við áherslur HB Grandi í umhverfismálum munum við flokka allt sorp sem fellur til vegna hátíðarinnar.“