Hátíðahöld við Reykjavíkurhöfn um sjómannadagshelgina eru sem fyrr kölluð „Hátíð hafsins“ og er það tveggja daga hátíð sem samanstendur af tveimur hátíðardögum, hafnardeginum sem haldinn er á laugardeginum og sjómannadeginum sem haldinn er á sunnudeginum, eins og Dagmar Haraldsdóttir, framkvæmdastjóri Hátíðar hafsins, segir frá.
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Í ár er sjómannadagurinn tileinkaður 100 ára fullveldisafmæli Íslands, enda órjúfanlegur hluti af sögu lands og þjóðar,“ segir Dagmar um viðburðinn í ár. „Hátíðarsvæðið nær frá Hörpu, um gömlu höfnina, út á Grandagarð og að HB Granda. Einnig verður útisvið á Grandagarði með skipulögðum viðburðum, bæði laugardag og sunnudag.“
Þó margt sé með svipuðu sniði milli ára þá er af nógu að taka hvað nýja viðburði varðar á Hátíð hafsins í ár, eins og Dagmar rekur.
Hundrað furðufiskar á færibandinu færast nær!
„Í tilefni af 100 ára fullveldisafmælinu ætlum við í samvinnu við yngri gesti hátíðarinnar að búa til listaverk sem við nefnum 100 furðufiskar á færibandinu ,“ útskýrir hún. „Stefnan er tekin á að það verði hannaðir 100 furðufiskar, einn fyrir hvert lýðveldisár og úr þeim hannaður glæsilegur skúlptúr. Þetta verk vísar ekki síður í það sem hátíðin er einna þekktust fyrir, en það er furðufiskasýningin. Veggurinn með listaverkinu verður á bryggjusprellinu á Bótarbryggju.“Þá verður sannkallaður stelpuslagur þegar sex stólpakvenmenn etja kappi á plankanum við Vesturbugt á sjómannadeginum 3. júní 2017, kl. 15:10. „Þá fæst úr því skorið hver er vöskust og hver er fræknust þegar þær láta koddahöggin dynja hver á annarri þar til önnur skellur á sænum við sára skömm,“ segir Dagmar og kímir við. Konurnar sem þar etja kappi eru heldur engir aukvisar en þeirra á meðal eru Saga Garðarsdóttir, leikkona og uppistandari, Þórunn Antonía Magnúsdóttir söngkona og Þuríður Blær Jóhannsdóttir, leikkona og Reykjavíkurdóttir. „Því má bæta við að kynnir verður enginn annar en garpurinn Halldór Halldórsson, eða Dóri DNA,“ bætir Dagmar við.
Klukkan 14.00 á laugardag verður svo opnað nýtt smáforrit um sögu Reykjavíkurhafnar sem hlotið hefur nafnið Minjaslóð . Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mun opna það formlega.
Í tilefni alþjóðlega hjólreiðadagsins verður Dr. BÆK við háfjallagám slysavarnafélagsins Landsbjargar á Bótarbryggju og leiðbeinir um helstu vorverk hjólreiðamannsins laugardag og sunnudag kl. 13.00 – 16.00.
Heilsum gesti á þriggja ára fresti
Þriðja hvert ár kemur færeyski kútterinn Westward Ho til Íslands til að taka þátt í hátíðarhöldunum og í ár er komið að heimsókn.„Það gleður okkur alltaf mikið að fá hann hingað til lands enda setur hann óneitanlega alltaf jafn fallegan svip á hátíðarsvæðið,“ bendir Dagmar á. „Allir gestir hátíðarinnar eru velkomnir um borð til að skoða skipið á laugardeginum. Í tilefni af komu skipsins mun Marin Frýdal, sem er „býráðslimur“ í Færeyjum, verða einn af ræðumönnum sjómannadagsins í heiðrun sjómanna á sunnudeginum kl. 14.00. Af öðrum föstum og sívinsælum liðum má nefna okkar ævintýralega sjávartívóli á Bótarbryggju sem hefur alveg slegið í gegn hjá yngri sem eldri kynslóðinni. Hafrannsóknastofnun Íslands sýnir helstu nytjafiska við Ísland auk fjölmargra fisktegunda sem finnast í úthafinu og koma sjaldan fyrir sjónir almennings á Grandagarði á furðufiskasýningunni og þá fá gestir hátíðarinnar að bragða á lostæti úr hafinu í boði Faxaflóahafna og Sjómannadagsráðs í tjöldunum á Grandagarði. Á borðstólum verða þrjár tegundir af síld ásamt einstöku makrílpate, súrum hval og þorskalifrapate. Skrúðganga meðfram höfninni fer fram á sjómannadaginn kl. 13.00 frá Hörpu. Skoppa og Skrítla hefja þar leika með því að taka á móti gestum fyrir framan Hörpu kl. 12.30 ásamt Skólahljómsveit Austurbæjar. Það verður því nóg um að vera og við kappkostum eins og vanalega að allir finni sér eitthvað við hæfi, ungir sem aldnir. Hátið hafsins er ætluð allri fjölskyldunni.“
Minnumst þess hvaðan við komum á sjómannadaginn
Dagmar er fljót til svars þegar hún er innt eftir því hvers vegna það er að hennar mati mikilvægt að halda sjómannadaginn hátíðlegan. „Sjómannadagurinn minnir okkur á það að við værum ekki sú þjóð sem við erum í dag ef við hefðum ekki getað sótt okkur fisk í sjó og er órjúfanlegur hluti af sögu lands og þjóðar,“ segir Dagmar. „Því er svo mikilvægt að halda þennan dag hátíðlegan og minnast þess hvaðan við komum, heiðra aldraða sjómenn og minnast þeirra sem fórust. Þetta voru miklar hetjur sem oft á tíðum lögðu sig í mikla hættu. En líka að minnast ekki síður þeirra sem heima voru. Eiginkonur, börn og fjölskyldur þeirra sem héldu hjólunum gangandi meðan mennirnir voru kannski vikur og mánuði úti á sjó. Þetta eru forfeður okkar sem lögðu drög að því að gera Ísland að því sem það er í dag og eru enn að þó aðstæður séu sannarlega öðruvísi í dag. Því er svo mikilvægt að viðhalda sjómannadeginum, fræða og upplýsa og minnast þess hvaðan við komum.“Dagmar minnir á að í ár er 100 ára fullveldisafmæli Íslands – „þökk sé þeim sem færðu okkur björg í bú og lögðu drög að uppbyggingu lands og þjóðar, þ.e. sjómennirnir og fjölskyldur þeirra.“
Þá má að sögn Dagmarar heldur ekki gleyma því að án byggingar hafnarinnar hefðu aðstæður verið allt aðrar. „Þess vegna er Hátíð hafsins gleðilegur viðburður og samanstendur af hafnardeginum, sem er laugardagurinn og sjómannadeginum sem er sunnudagurinn en þessir tveir þættir eru órjúfanlegir fyrir uppgang og velsæld sjómennsku í Reykjavík.“
Það sem Dagmar ætlar að sjá
Að eigin sögn fer helgin aðallega í umsjón og utanumhald hjá Dagmar en þó ætlar hún að gera sitt besta til að upplifa eitt og annað um helgina.„Ég verð á fleygiferð um allt svæðið en vil helst ekki missa af björgun úr sjó sem Landhelgisgæslan sér um. Mér finnst alltaf svo magnað að horfa á þyrluna yfir haffletinum, og koddaslagnum sem verður á Bótarbryggju kl. rúmlega 3 vil ég ekki missa af en í ár munu stelpur slást! Svo ætla KK og félagar að spila á stóra sviðinu og bryggjusprellið verður á sínum stað þar sem hægt er að smíða eigin bát og búa til furðufisk. Og það sem allir hafa í minningunni um hátíðina er það sem við köllum furðufiskasýningu þar sem eru til sýnis allir helstu sjófiskar við Íslandsstrendur. Svo fæ ég mér örugglega vöfflukaffi hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg í skipinu Sæbjörgu sem mun liggja við Bótarbryggju. Heiðrun sjómanna sem verður á stóra sviðinu kl. 14:00 er mjög hátíðleg stund sem ég fylgist alltaf með. Annars er eitthvað fyrir alla á hátíðinni og ég mæli með að fólk fari inn á síðuna okkar www.hatidhafsins.is og kynni sér dagskrána,“ segir Dagmar Haraldsdóttir að lokum.