Sama sagan. S-NS
Norður | |
♠Á9763 | |
♥Á108 | |
♦ÁK3 | |
♣52 |
Vestur | Austur |
♠G | ♠KD108 |
♥– | ♥764 |
♦DG10862 | ♦974 |
♣ÁDG1064 | ♣983 |
Suður | |
♠542 | |
♥KDG9532 | |
♦5 | |
♣K7 |
Suður spilar 5♥.
„Það er alltaf sama sagan með þig.“
Önundur önugi er kvartsár og ósanngjarn makker, ávallt sannfærður um að mistökin liggi hinum megin borðsins. Hann var hér í austur. Suður vakti á 3♥, vestur stökk í 4G til að sýna láglitina og norður lauk sögnum með 5♥. Tíguldrottning út.
Sagnhafi dúkkaði tíguldrottninguna í fyrsta slag! Vestur skipti yfir í spaðagosa, sagnhafi tók með ás, henti spöðum í ♦ÁK og trompaði spaða. Notaði svo innkomur blinds á hjarta til að fría fimmta spaðann og nýta. Glæsileg sniðgönguspilamennska, sem vörnin á ekkert svar við. En Önundur var önugur:
„Ef þú skiptir yfir í tromp í öðrum slag vantar eina innkomu í borð til að nýta spaðann.“
„Ég átti ekki tromp til,“ svaraði vestur þolinmóður, enda ýmsu vanur.
„Alltaf sama sagan – tómar afsakanir.“