Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt þessa helgina en sumstaðar er enn meira tilefni til hátíðahalda en annars staðar.
Hafnarfjarðarkaupstaður fagnar til að mynda 110 ára afmæli 1. júní og því verður fagnað með ýmsum hætti í hjarta Hafnarfjarðar. Húllumhæið hefst þegar á föstudeginum og heldur áfram án afláts fram yfir sjálfan sjómannadaginn sem er á sunnudaginn. „Í dag, 1. júní kl. 16:00, dregur til tíðinda en þá verður tilkynnt um úrslit í opinni hugmyndasamkeppni Hafnarfjarðarbæjar, Hafnarfjarðarhafnar og Arkitektafélags Íslands um framtíðarskipulag Flensborgarhafnar og Óseyrarsvæðis,“ segir Andri. „Sýning á öllum tillögum sem bárust í samkeppninni verður í „Apótekinu“ í Hafnarborg og stendur hún til 8. júní 2018.“
„Þannig byggðist bærinn“
Föstudaginn 1. júní kl. 17:00 opnar Byggðasafn Hafnarfjarðar nýja sýningu í forsal Pakkhússins sem ber heitið „Þannig byggðist bærinn“ þar sem varpað er ljósi á uppbyggingu, þróun og skipulag Hafnarfjarðar á fyrstu árum kaupstaðarins. Byggðasafnið hefur ennfremur sett upp ljósmyndasýninguna „Hafnarfjörður frá fullveldi til lýðveldis“ á göngustígnum sem liggur meðfram höfninni. „Sýningin samanstendur af 50 ljósmyndum sem eru lýsandi fyrir bæjarbraginn og lífið í bænum á þeim tíma,“ útskýrir Andri.Laugardaginn 2. júní kl. 15 verður opnuð sýning í tilefni þess að Hafnarborg á tvöfalt afmæli, en nú eru liðin 35 ár frá því að hjónin í Hafnarfjarðar Apóteki, Sverrir Magnússon og Ingibjörg Sigurjónsdóttir, færðu Hafnarfjarðarbæ húsnæði sitt að Strandgötu 34 að gjöf, ásamt listaverkasafni sínu. Fimm árum síðar var Hafnarborg formlega vígð, 21. maí 1988.
„Á sýningunni getur að líta valin verk úr safneign Hafnarborgar, bæði verk sem oft hafa verið sýnd áður við ólík tækifæri eða fengið að prýða veggi margra stofnana bæjarins og einnig verk sem ekki hafa verið hreyfð úr geymslunum síðan þeim var komið þar fyrir,“ segir Andri. „Með þessari sýningu viljum við endurspegla margbreytileika myndlistarinnar sem varðveitt er í Hafnarborg.“
Þrautabraut, siglingar og Salka Sól
Það verður svo blásið til hátíðarhalda við Flensborgarhöfn á sjómannadaginn 3. júní og mikil dagskrá á döfinni í tilefni dagsins.„Við höfnina er nú bæði iðandi líf tengt fiski og fiskvinnslu og einnig fjölbreytt lista- og menningarlíf sem verður sannarlega í kastljósinu á sjómannadaginn,“ bendir Andri á. „Hátíðarsvæðið við höfnina verður opnað kl. 13:00 og hátíðarhöldin standa til kl. 17:00.“ Björgunarsveit Hafnarfjarðar býður meðal annars upp á þrautabraut í sjó, rennibraut, gámasig og fluglínutæki, kaffisala slysavarnadeildarinnar Hraunprýði verður á sínum stað, Siglingaklúbburinn Þytur verður með opið hús og skemmtisigling í boði Hafnarfjarðarhafnar. Fram koma Bjartmar Guðlaugsson og Salka Sól og leikhópurinn Lotta flytur söngsyrpu. „Vinnustofur listamanna í Íshúsi Hafnarfjarðar og við Fornubúðir verða opnar fyrir almenning að heimsækja og skoða, og fagurkerarnir ættu ekki að sleppa tækifærinu sem þarna gefst til að heimsækja Gáru, vinnustofu átta leirlistakvenna í Fornubúðum 8, eða skartgripaverkstæðið SIGN þar sem fallegir skartgripir eru hannaðir og smíðaðir í Fornubúðum 12,“ minnir Andri á og undirstrikar hve mikil skapandi starfsemi er um þessar mundir í kringum hafnarsvæðið í Hafnarfirði.
Furðuverur undirdjúpanna verða svo til sýnis á bryggjunni. Við Íshúsið verður einnig boðið upp á bátasmíði fyrir krakkana.
Rétt eins og á föstudegi og laugardegi verður hin merka saga Hafnarfjarðar í heiðri höfð á sjómannadaginn sjálfan, að sögn Andra.
„Bookless bungalow“ nefnist sýning sem er til húsa í Vesturgötu 32 en hún fjallar um tímabil erlendu útgerðanna í Hafnarfirði á fyrri hluta 20. aldar á heimili þeirra Booklessbræðra. Ekki má heldur gleyma hinum stórmerka Siggubæ við Kirkjuveg 10, en Siggubær er varðveittur sem sýnishorn af heimili sjómanna í Hafnarfirði frá fyrri hluta 20. aldar, þar sem hægt er að upplifa og kynnast því hvernig alþýðufólk í bænum bjó á þeim tíma.“
Sjómannadagurinn að hætti Andra viðburðastjóra
„Í fyrra þótti mér rosalega gaman að sjá leikskólakrakka prófa gámasigið undir styrkri handleiðslu okkar öfluga björgunarsveitarfólks,“ segir Andri um það sem hann ætlar helst ekki að missa af á sjómannadeginum í ár. „Eldri krakkarnir ættu svo allir að prófa þrautabrautina og prófa að upplifa sjokkið að detta aðeins í ískaldan sjóinn. Eldri kynslóðirnar eiga svo eflaust eftir að njóta þess að ganga milli vinnustofa alls listafólksins sem hefur vinnuaðstöðu í Íshúsi Hafnarfjarðar og við Fornubúðir.“Saga hafnfirskra sjómanna og afrek þeirra hefur sett mark sitt á bæinn að sögn Andra og því mikilvægt að hans mati að sjómenn og Hafnfirðingar allir geri sér glaðan dag á sjómannadaginn með fjölskyldum og vinum og kynni sér sjómannsstarfið. „Svo er ótrúlega gaman að skella sér í bátsferð með Eldingu og upplifa það að sigla inn Hafnarfjarðarhöfn og sjá hvað Hafnarfjörður er fallegur frá sjónum séð.“
Loks minnist Andri á að hann ætli að gera eitt með sérstöku sniði á sjómannadaginn – hann ætlar að mæta í vinnuna með eftirminnilegum hætti.
„Ég er sjálfur reyndar búinn að heita því að sigla í vinnuna á sjómannadaginn. Ég hef sjálfur oft tekið þátt í róðrarkeppninni en hef alltaf setið í sæti stýrimannsins svo það er kannski komið að mér að róa aðeins en þar sem ég bý við Herjólfsgötuna og er nýbúinn að kaupa mér kajak þá kemur ekki annað til greina en að sigla inn höfnina á sunnudaginn.“