SÍ Starf forstjóra verður auglýst.
SÍ Starf forstjóra verður auglýst. — Morgunblaðið/Hjörtur
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Agnes Bragadóttir agnes@mbl.

Agnes Bragadóttir

agnes@mbl.is

Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands (SÍ), hefur ákveðið að sækja ekki um starf forstjóra SÍ á ný, en Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra ákvað í vor að starf forstjóra yrði auglýst laust til umsóknar. Steingrímur Ari gerði starfsmönnum SÍ grein fyrir ákvörðun sinni á fundi í gærmorgun.

„Það liggur fyrir hver vilji ráðherrans er. Ég hef haft tvo mánuði til þess að hugleiða mína stöðu og niðurstaðan er að það er þá líka minn vilji að hætta sem forstjóri Sjúkratrygginga,“ sagði Steingrímur Ari í samtali við Morgunblaðið í gær.

Steingrímur Ari segir að skipunartími hans sem forstjóri SÍ renni út í lok október í haust og það sé síðan bara samkomulagsatriði hvort hann hætti fyrr eða ekki.

Steingrímur Ari var spurður hvort það hefði komið honum á óvart í vor, þegar ljóst varð að heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa starf hans: „Í rauninni skiptir það ekki öllu máli. Það sem skiptir máli er að vilji ráðherra er augljós. Það liggur fyrir að hann vill skipta um forstjóra. Ég hef kallað eftir ákveðnum svörum og verið í samskiptum við ráðuneytið og í framhaldi þess er það mín niðurstaða að ég vil hætta. Með því að tilkynna þetta núna er ég auðvitað að auðvelda mönnum að sækja um og vil nota tækifærið til þess að hvetja alla góða menn til að sækja um starfið og tryggja að Sjúkratryggingarnar blómstri og dafni,“ sagði Steingrímur Ari.