— Morgunblaðið/Þórður
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
„Mér finnst fátt skemmtilegra en að taka þátt í íþróttum og hreyfingu með vinum mínum,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri Hreyfiviku UMFÍ sem hófst sl. mánudag og lýkur í dag, 2. júní, með Kvennahlaupi...

„Mér finnst fátt skemmtilegra en að taka þátt í íþróttum og hreyfingu með vinum mínum,“ segir Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi og verkefnastjóri Hreyfiviku UMFÍ sem hófst sl. mánudag og lýkur í dag, 2. júní, með Kvennahlaupi ÍSÍ.

Hreyfivikan er samevrópskt verkefni sem var ýtt úr vör árið 2012 í því skyni að hjálpa fólki sem hreyfir sig lítið að standa upp úr stólnum og bæta lífið með hreyfingu. UMFÍ hefur verið með frá upphafi og hefur verkefnið notið vinsælda.

Bryddað hefur verið upp á mörgu síðustu daga og þótt formlegri dagskrá ljúki nú halda vafalaust margir áfram að hreyfa sig, enda er slíkt heilsubót fyrir líkama og sál.

„Markmið Hreyfiviku UMFÍ hefur frá upphafi verið að draga úr kyrrsetu og auka ánægju fólks af því að hreyfa sig. Þetta er ekki átak heldur viðhorf. Hreyfing eykst ekki nema það sé gaman og þegar fólk hreyfir sig meira þá dregur sjálfkrafa úr kyrrsetunni. Það er svo mikilvægt að finna gleðina í hreyfingunni. Þetta hefur tekist svo vel að á mörgum stöðum iðar samfélagið af lífi,“ segir Sabína.

Hreyfingarleysi er vá

Frá upphafi Hreyfivikunnar hefur legið fyrir að hún verði í átta ár. Verkefninu lýkur samkvæmt því árið 2020 og aðeins tvö ár eftir. Sabína segir mikið hafa áunnist síðustu ár. „Hreyfingarleysi er vá. Æ fleiri gera sér grein fyrir mikilvægi þess að hreyfing sé hluti af daglegu lífi. Þá er verið að auka hreyfingu sem hluta af skólalífinu með sama hætti og endurvinnsla þykir í dag sjálfsagður hlutur,“ segir Sabína og leggur aftur áherslu á að hreyfing verði að vera skemmileg svo fólk vilji stunda hana.

„Fólk verður einfaldlega að leyfa sér að finna barnið innra með sér og leyfa sér að hafa aftur gaman af því að hreyfa sig,“ segir Sabína að síðustu.