Adrift Shailene Woodley við stýrið, í hlutverki Tami Oldam. Sam Claflin leikur unnustann, Richard Sharp.
Adrift Shailene Woodley við stýrið, í hlutverki Tami Oldam. Sam Claflin leikur unnustann, Richard Sharp. — Ljósmynd/STX
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hafstraumar og vindar höfðu mikið að segja við túlkun Shailene Woodley í hlutverki sínu í nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, Adrift .

Jón Birgir Eiríksson

jbe@mbl.is

Hafstraumar og vindar höfðu mikið að segja við túlkun Shailene Woodley í hlutverki sínu í nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, Adrift . Kvikmyndin byggist á raunverulegum atburðum, sjávarháska kærustuparsins Tami Oldham, sem Shailene leikur, og Richard Sharp, en þau urðu fellibylnum Raymond að bráð á Kyrrahafi árið 1983. Höfðu þau tekið að sér að sigla skútu frá Tahítí til San Diego í Bandaríkjunum.

Sharp drukknaði en Oldham komst lífs af og vaknaði ein í illa farinni skútunni um 30 klukkustundum síðar. Hverfist meginhluti myndarinnar um sjálfsbjörg hennar og innri átök vegna missisins, en 41 dagur leið þar til hún náði landi.

Baltasar Kormákur er þekktur fyrir að líkja eftir raunverulegum aðstæðum á tökustöðum kvikmynda sinna og er Adrift engin undantekning á því. Kvikmyndin var tekin upp við Fídji-eyjar í Kyrrahafi, um 90% á rúmsjó. Kvikmyndagerðarfólkið sigldi því til vinnu á hverjum morgni með hraðbáti í allt að þrjá tíma um þriggja mánaða skeið.

Náttúruöflin í nýju ljósi

Woodley segir alla sem að myndinni komu hafa tekið skref út fyrir þægindarammann og glímdu margir við sjóveiki. Aðstæður voru krefjandi, en hún lýsir því að náttúran hafi þó heillað frá fyrsta degi. Jafnvel þótt hún hafi nokkra reynslu af siglingum hafi þriggja mánaða dvöl á hafi úti varpað nýju og skýru ljósi á náttúruöflin.

„Nú til dags lifum við mörg lífinu ótengd náttúrunni og það er auðvelt að gleyma því að allur heimurinn tengist með einum eða öðrum hætti. Í vistkerfinu vinna ótal þættir saman og það var einstakt að fá að upplifa þetta á tökustað,“ segir hún og nefnir að sjaldgæft sé að leikstjórar og framleiðendur taki raunverulegar aðstæður umfram tilbúinn raunveruleika í myndveri.

„Ég held að þetta sé ástæðan fyrir því að fólk elskar kvikmyndir Baltasars á borð við Everest og Djúpið , að náttúran leiki jafn stórt hlutverk og leikarar og kvikmyndatökumenn,“ segir Woodley. Blaðamaður útskýrir að Íslendingar muni sjálfsagt vilja lesa um samstarfið við Baltasar Kormák, enda sé hann af mörgum dáður hér.

„Það skil ég vel! Það er draumi líkast að vinna með honum, ég hef aldrei átt jafn gott samstarf við jafn frjóan leikstjóra,“ segir hún og kveðst hafa fengið gott rými til að túlka hlutverk sitt eftir eigin höfði.

Hún segir Baltasar eldkláran og færan í sínu fagi og nefnir sérstaklega auðmýkt hans gagnvart verkefninu. „Hann var mjög meðvitaður um að hann, rúmlega fimmtugur karlmaður, væri að segja sögu þar sem kona er í aðalhlutverki.

Hann vildi segja söguna frá hennar sjónarhorni og reyndi ekki að skilja fullkomlega sjálfur hvað flýgur í gegnum huga konu á þrítugsaldri í aðstæðum sem þessum, heldur lét hann mig og aðra um að leiða það í ljós. Síðan hjálpuðumst við að við að byggja þetta inn í söguþráðinn,“ segir Woodley.

Mikil örvun í umhverfinu

Persóna Tami Oldham er ein í forgrunni stærstan hluta myndarinnar. Woodley segist þrátt fyrir það aldrei hafa „verið einmana“ og notið sín að fullu í leik sínum. „Vegna þess að myndin er tekin upp við raunverulegar aðstæður má segja að hafið hafi verið í hlutverki mótleikarans. Það var mikil örvun í náttúrunni,“ segir hún. „Hlutverk okkar leikaranna er í grundvallaratriðum að setja okkur í ákveðnar aðstæður með eins sannfærandi hætti og hægt er. Við fengum ótal margt til að vinna með, hvort sem það var hafið sjálft, hafstraumar, vindar eða segl. Við þessar aðstæður er aldrei kyrrstaða og hver taka er einstök. Þessar margbreytilegu aðstæður skína í gegn í myndinni og ég naut mín mjög í þessu umhverfi,“ segir hún.

Oldham ritaði bókina Red Sky in Mourning: A True Story of Love, Loss and Survival at Sea árið 1998 um raunir sínar á Kyrrahafi, en hún dvaldi á tökustað í um tvær vikur. Hefur hún látið í ljós mikla ánægju með útkomuna og Woodley segir hana hafa hjálpað mikið til við gerð myndarinnar.

Blanda af ást og spennu

„Ég átti dásamlegt samband við Tami meðan á tökum stóð og einnig eftir tökur. Hún opnaði sig fyrir okkur í samtölum og svaraði spurningum sem við höfðum um hana og Richard,“ segir hún, en Sam Claflin fer með hlutverk Richards Sharp. „Við Sam vorum líka heppin að fá að vinna saman, við eigum margt sameiginlegt bæði faglega og persónulega. Þegar maður eyðir jafn miklum tíma með öðrum úti á sjó þá myndast sérstök tengsl. Þetta gerði okkur kleift að þróa með okkur nánd og strauma sem við nýttum okkur,“ segir Woodley og nefnir að ástin sé alltumlykjandi í sögunni.

„Þegar skammt er á milli heims og helju höfum við öll tilhneigingu til að líta til baka á tengsl okkar við annað fólk, samfélagið og ástina. Ástin tengir saman alla hluti.“