[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
* Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru báðar úr leik á Jabra Ladies Open mótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

* Valdís Þóra Jónsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru báðar úr leik á Jabra Ladies Open mótinu í golfi en mótið er hluti af Evrópumótaröðinni.

Guðrún Brá lék í dag á 79 höggum eða á átta höggum yfir pari en hún var á meðal efstu kylfinga eftir fyrsta daginn. Guðrún Brá lauk keppni á sjö höggum yfir pari og endaði hún í 67.-79. sæti

Valdís Þóra lék hringinn í gær á 70 höggum eða á einu höggi undir pari. Henni tókst hins vegar ekki vel upp á fyrsta hringnum sem hún lék á 78 höggum eða á sjö höggum yfir pari. Valdís endaði í 57.-67. sæti.

* Grétar Snær Gunnarsson, knattspyrnumaður úr FH, er farinn sem lánsmaður til færeyska liðsins HB frá Þórshöfn en þjálfari þar er Heimir Guðjónsson , fyrrverandi þjálfari FH. Grétar er 21 árs og hefur verið í 21-árs landsliði Íslands. Hann lék með HK sem lánsmaður á síðasta ári en hefur ekki fengið tækifæri með FH-ingum það sem af er þessu tímabili. HB, sem er einnig með Brynjar Hlöðversson, fyrrverandi fyrirliða Leiknis í Reykjavík, í sínum röðum er með fimm stiga forystu á toppi færeysku úrvalsdeildarinnar.