Róbert Ísak Jónsson
Róbert Ísak Jónsson
Róbert Ísak Jónsson úr Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði hafnaði í 4. sæti í 200 metra fjórsundi á opna breska meistaramótinu sem nú stendur yfir í Sheffield á Englandi. Róbert, sem keppir í flokki þroskahamlaðra, kom í mark á 2.

Róbert Ísak Jónsson úr Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði hafnaði í 4. sæti í 200 metra fjórsundi á opna breska meistaramótinu sem nú stendur yfir í Sheffield á Englandi.

Róbert, sem keppir í flokki þroskahamlaðra, kom í mark á 2.15,07 mínútum og setti um leið nýtt og glæsilegt Íslandsmet. Í undanrásunum í gærmorgun setti hann nýtt met þegar hann synti á tímanum 2.17,01 mín.

Japaninn Dai Tokairin landaði gullinu á 2.12.84 mín. svo það er morgunljóst að Róbert þarf að spýta enn frekar í lófana ef hann ætlar sér að skáka þeim fljótustu í greininni. Hollendingurinn Marc Evers hafnaði í 2. sæti á tímanum 2.13,22 mín. en hann hefur verið lengi að í sundi S14 (þroskahamlaðir) og borið hróður greinarinnar víða. gummih@mbl.is