Sú næsta? Verður næsta mynd Baltasars The Good Spy með Hugh Jackman?
Sú næsta? Verður næsta mynd Baltasars The Good Spy með Hugh Jackman? — AFP
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er orðaður við kvikmyndina The Good Spy á kvikmyndavefnum Empire.
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er orðaður við kvikmyndina The Good Spy á kvikmyndavefnum Empire. Í frétt á vefnum segir að Baltasar íhugi að taka að sér leikstjórn myndarinnar og að ástralski leikarinn Hugh Jackman verði mögulega í aðalhlutverki. Handrit myndarinnar er sannsögulegt og segir af yfirmanni bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, í Mið-Austurlöndum, Robert Ames, sem lést í sprengjuárás við sendiráð Bandaríkjanna í Beirút í Líbanon árið 1983. Handrit myndarinnar er byggt á bók Kai Bird.