Noregur Lars Lagerbäck stýrir Norðmönnum á Laugardalsvellinum í kvöld.
Noregur Lars Lagerbäck stýrir Norðmönnum á Laugardalsvellinum í kvöld. — Morgunblaðið/Eggert
Kristján Jónsson kris@mbl.is „Við munum reyna hvað við getum að vinna leikinn.

Kristján Jónsson

kris@mbl.is

„Við munum reyna hvað við getum að vinna leikinn. Leikurinn er mikilvægur fyrir okkur í mínum huga vegna þess að við viljum halda áfram að bæta okkur,“ sagði Lars Lagerbäck, landsliðsþjálfari Norðmanna og fyrrverandi þjálfari Íslands, við Morgunblaðið eftir æfingu norska liðsins á Kópavogsvelli í gær.

„Ég vil auðvitað ekki að mínir leikmenn spili gróft. Þess óska ég aldrei. Íslendingar vilja einnig vinna leikinn og þar af leiðandi verður leikurinn sjálfsagt jafn og erfiður. Ég vona sannarlega að enginn meiðist í leiknum. Ég sá að Laugardalsvöllur er ekki upp á sitt besta út af rigningum í maí en yfirleitt hefur mér fundist völlurinn frábær. Við þessar aðstæður getur skapast sú hætta að menn séu aðeins of seinir í návígin,“ sagði Lagerbäck.

Spurður úr í riðil Íslands á HM sagði Svíinn að Ísland væri augljóslega í mjög erfiðum riðli. „Þegar ég fylgdist með drættinum þótti mér strax sem riðillinn væri einn sá sterkasti í keppninni. Íslendingar voru óheppnir að því leyti en þessu geta einnig fylgt kostir. Ísland fer inn í keppnina sem lið sem ekki er talið að komist áfram úr riðlinum. En eins og hugarfarið er í íslenska hópnum þá eiga þeir möguleika en deila má um hversu miklir þeir eru. Ísland er ekki líklegast til að vinna riðilinn en það hefur sýnt sig að þetta lið má aldrei vanmeta. Vinnusemin, skipulagið og hugarfarið er einfaldlega þess eðlis að enginn er öruggur um sigur gegn Íslandi,“ sagði Lars Lagerbäck.