„Eftir að fyrsta tónleikahelgi Ljótu hálfvitanna á Hard Rock Cafe tókst líka svona fáránlega frábærlega var aðeins tímaspursmál hvenær leikurinn yrði endurtekinn. Nú er það komið á hreint,“ segir í tilkynningu frá hljómsveitinni Ljótu hálfvitunum sem kemur fram á fyrrnefndum stað, Hard Rock Cafe, í kvöld kl. 22.
„Það er ekki útlit fyrir að frekari tækifæri gefist til að hlýða á Hálfvitana leika listir sínar hér sunnan heiða í sumar svo allt verður lagt undir, ekkert til sparað, öll spil lögð á borðið og svo framvegis og svo framvegis,“ segir enn fremur og að forsala miða fari fram á tix.is en þeir verða einnig seldir við inngang.