Líflegur Kór Lindakirkju í Kórum Íslands.
Líflegur Kór Lindakirkju í Kórum Íslands.
Danski popp- og sálarkórinn Pop'n Soul heldur tónleika í dag kl. 17 í Lindakirkju í Kópavogi. Danska kórinn skipa 65 söngvarar og mun Kór Lindakirkju taka með þeim lagið, auk þess að syngja nokkur lög einn. Á efnisskránni eru popp- og gospellög.

Danski popp- og sálarkórinn Pop'n Soul heldur tónleika í dag kl. 17 í Lindakirkju í Kópavogi. Danska kórinn skipa 65 söngvarar og mun Kór Lindakirkju taka með þeim lagið, auk þess að syngja nokkur lög einn. Á efnisskránni eru popp- og gospellög. Aðgangur er ókeypis.

Lindasókn var stofnuð árið 2002 og kórinn hóf starfsemi sína fljótlega eftir það. Óskar Einarsson tók við stjórn kórsins í ársbyrjun 2010 og stýrir honum enn.