Pétur og Polina hafa verið danspar í þrjú ár og hafa náð frábærum árangri sem Pétur þakkar hve samstiga þau eru í öllu.
Pétur og Polina hafa verið danspar í þrjú ár og hafa náð frábærum árangri sem Pétur þakkar hve samstiga þau eru í öllu.
Pétur og Polina höfðu bara dansað saman í eitt ár þegar þau urðu heimsmeistarar í latíndönsum. Pétur segir jafnvægi í mataræðinu mikilvægt fyrir dansara en hann fær sér stundum nammi. Guðrún Óla Jónsdóttir gudruno@mbl.is

Dansparið Pétur Gunnarsson og Polina Oddr úr Dansfélagi Reykjavíkur dansaði sig á dögunum inn í sex para úrslit í tveimur aldursflokkum í hinni virtu Blackpool Dance Festival-danskeppni sem haldin var á dögunum. Það er besti árangur sem Íslendingar hafa náð í keppninni en alls tóku 650 pör þátt í þessum tveimur flokkum. Þau Pétur og Polina eru fyrst Íslendinga tvöfaldir heimsmeistarar í latíndönsum undir 21 árs og sigruðu á International-mótinu í London í fyrra sem er eitt af þremur stærstu mótum heims. Auk þess hafa þau náð góðum árangri á öðrum mótum, bæði hér heima og erlendis. Þau hafa einungis dansað saman í þrjú ár svo óhætt er að segja að árangur þeirra sé frábær.

Blaðamaður náði tali af Pétri þar sem hann slakaði á í sólinni á Krít í kærkomnu fríi enda búið að vera nóg að gera í undirbúningi fyrir Blackpool-danskeppnina.

„Við Polina reynum alltaf að taka smáfrí eftir stórmótin enda alltaf búin að æfa rosalega mikið í kringum þau. Við fengum því vikufrí núna. Oftast förum við saman en í þetta sinn fór ég með vini mínum. Það var líka ágætt að fá aðeins frí hvort frá öðru, við erum auðvitað alltaf saman.“

Heimsmeistarar á fyrsta ári

„Ég er búinn að dansa í tuttugu ár, eða frá því ég var þriggja ára. Ég dansaði áður í standard-dönsum líka en svo ákvað ég að sérhæfa mig og dansa bara suðurameríska dansa, þ.e.a.s. cha-cha-cha, rúmbu, samba, paso og djæf. Polina, sem er frá Úkraínu, byrjaði að dansa sex ára. Við fundum hvort annað einhvern veginn af tilviljun og við smullum bara strax saman, frá fyrstu stundu.“

Þið virðist ekki hafa þurft mjög langan aðlögunartíma þar sem þið urðuð heimsmeistarar saman strax á fyrsta ári?

„Nei, þetta var bara strax „perfect match“. Ef báðir aðilar eru með góðan grunn og góðir dansarar þá geta þeir dansað hvað sem er. Það þarf ekki að leggja mikla vinnu í grunninn en svo koma smáatriðin, t.d. í samhæfingu, og þar er alltaf hægt að gera ennþá meira.“

Mikið á ferðinni

Polina er frá Úkraínu og er búsett þar, en Pétur segir það ekki há þeim að búa hvort í sínu landi. Þau ferðist reyndar mikið.

„Við æfum mjög mikið heima á Íslandi og þá oftast ein. Svo erum við með mjög góða danskennara í Englandi og á Ítalíu sem eru aðalkennararnir okkar. Við höfum líka æft í Ameríku og Asíu. Við reynum líka að tengja æfingarnar við danskeppnirnar og hittum þá kennarana sem eru oftast með okkur á keppnunum. Við erum mikið á ferðinni.“

Pétur segir erfitt að meta hversu margir klukkutímar fari í æfingar í hverri viku, en að þeir séu pottþétt margir. „Við æfum á hverjum einasta degi, eins mikið og hægt er, oftast marga tíma á dag. Það er enginn fastur frídagur hjá okkur, við metum það bara og tökum frí þegar við finnum að við þurfum á því að halda. Meira ef við erum búin að æfa alveg brjálæðislega mikið, eins og t.d. í kringum keppnir. Líkaminn segir líka stundum stopp.“

Agi og áhugi í bland

Hvernig er líf dansarans?

„Þetta er góð spurning og eiginlega erfitt að svara henni, því það er mjög misjafnt eftir hverjum og einum. Þú getur alveg stundað félagslífið mikið og dansað minna en ef þú leggur þig 100% fram í dansinum snýst í rauninni allt um hann. Það er svo margt í kringum dansinn; maður fer í jóga, teygir, fer í ræktina; borðar hollan mat. Það er ekkert rosalega mikill tími eftir sem getur farið í eitthvað annað. En maður reynir samt alltaf að finna einhvern tíma til að hitta fjölskyldu og vini.“

Pétur segir að þau Polina séu samstiga í dansinum, ekki bara á dansgólfinu heldur líka hvað æfingar og metnað varðar. „Við erum algjörlega samtaka í þessu og það sem er svo gott við samband okkar er að metnaðurinn er jafnmikill hjá okkur báðum. Þess vegna virkar þetta. Ef metnaðurinn er ekki nógu mikill hjá öðrum aðilanum virkar þetta ekki nógu vel og fólk hættir að dansa saman. Þú þarft að vera með bullandi áhuga á þessu ef þú ætlar að taka þetta alla leið.“

Þú minntist á hollt mataræði. Máttu aldrei fá þér nammi?

„Jú, jú, ég fæ mér alveg nammi. Mataræðið mitt er ekki brjálæðislega stíft. Ég reyni bara að borða hollan mat og passa að hafa jafnvægi í mataræðinu; borða kolvetni og prótein og fá allt hið rétta úr fæðunni. Það eru engin boð og bönn þannig lagað, en ef maður bætir á sig fer maður í aðhald. Venjulega heldur maður sér bara í jafnvægi.“

Geta allir dansað?

„Já, ekki spurning. Að sjálfsögðu eru sumir með meiri hæfileika en aðrir, en það geta allir dansað. Ef þú lærir sporin og hefur áhuga, þá bara láttu vaða.“

Blaðamanni leikur forvitni á að vita hvað maður þarf að hafa til að bera til að verða góður dansari. Pétur segir að því sé dálítið erfitt að svara. „Það er svo misjafnt. Ég myndi segja áhuga og vilja, fyrst og fremst. Maður þarf líka að hafa mikinn aga, bara eins og í öllu sem maður tekur sér fyrir hendur í lífinu ef maður ætlar að fara alla leið. Aginn ýtir manni áfram til að ná því sem maður vill fá út úr lífinu.“