Þormóður Sturluson fæddist á Fljótshólum í Gaulverjabæjarhreppi í Flóa 27. desember 1935. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Fossheimum á Selfossi 16. maí 2018. Foreldrar hans voru Sturla Jónsson, bóndi á Fljótshólum, f. 26.6. 1888, d. 14.2. 1953, og k.h. Sigríður Einarsdóttir, f. 9.1. 1892, d. 7.5. 1966. Þormóður átti sjö systkini, þau eru: Einar, f. 10.6. 1917, d. 15.7. 2003; Jóhanna, f. 10.10. 1918, d. 11.3. 1994; Steinunn, f. 22.11. 1920, d. 11.8. 1987; Gestur, f. 14.7. 1922, d. 1.11. 1995; Jón, f. 28.7. 1925, d. 2.9. 2008; Kristín, f. 6.10. 1928, d. 2.10. 1999, og Guðrún Jóna, f. 23.3. 1932, d. 28.12. 2006.

Hinn 25. desember 1965 kvæntist Þormóður Guðrúnu Jóhannesdóttur íþróttakennara, f. 2.5. 1942. Foreldrar Guðrúnar eru Jóhannes Ásbjörnsson, f. 26.10. 1911, d. 30.8. 2005, og k.h. Guðný Jóna Þorbjörnsdóttir, f. 12.9. 1915, Stöð, Stöðvarfirði. Þormóður og Guðrún eiga fjögur börn. Þau eru: 1) Sigríður Þormóðsdóttir, f. 21.9. 1966, gift Tom Songe-Møller, f. 2.11. 1955, barn a) Kristín Marit, f. 9.4. 2007. 2) Jóhannes, f. 10.12. 1967. Börn með fyrrverandi eiginkonu, Sólveigu Rósu Ólafsdóttur, f. 27.2. 1966, a) Ólafur, f. 16.8. 1998, og b) Guðrún, f. 12.12. 2000. 3) Pálmi, f. 10.1. 1970. Dóttir með fyrrverandi sambýliskonu, Þorbjörgu Valgeirsdóttur, f. 12.6. 1971, a) Erna Hödd, f. 19.7. 1991. Börn með fyrrverandi eiginkonu, Mette Kjærsgaard, f. 14.2. 1978, b) Soffia Louise, f. 2.12. 1997, c) Ásbjörn, f. 13.9. 2000, d) Jóhanna Sól, f. 19.7. 2006. 4) Sturla, f. 18.5. 1978, kvæntur K. Mareike Schacht, f. 26.9. 1983. Börn þeirra a) Þórunn, f. 11.12. 2006, b) Freyr, f. 12.9. 2009, c) Þorbjörn, f. 7.9. 2011, og d) Kolbeinn, f. 12.10. 2015.

Þormóður ólst upp á Fljótshólum, gekk í Barnaskóla Gaulverjabæjarhrepps og var einn vetur í Íþróttaskóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal. Hann var nokkrar vertíðir í Vestmannaeyjum, þar á meðal í áhöfn Halkíon 6, sem bjargaði áhöfnum af tveimur bátum og varð aflahæstur á vetrarvertíð í Vestmannaeyjum 1962. Þormóður og Guðrún tóku við búinu á Fljótshólum af Sigríði móður Þormóðs 1965 og bjuggu í félagsbúi með Jóni bróður hans og konu Þóru til ársins 1980. Þormóður og Guðrún héldu áfram búskap með kýr og grænmetisrækt þar til Sturla sonur þeirra og kona hans Mareike tóku við árið 2007.

Þormóður söng í kirkjukór Gaulverjabæjarkirkju frá unga aldri. Hann söng einnig í Bændakvartettinum undir stjórn Pálmars Þ. Eyjólfssonar í 20 ár. Þormóður var formaður Búnaðarfélags Gaulverjabæjarhrepps um árabil. Heilsa Þormóðs fór að gefa sig árið 2003 og síðasta eina og hálfa árið dvaldi hann á Hjúkrunarheimilinu Fossheimum á Selfossi.

Útför Þormóðs fer fram frá Gaulverjabæjarkirkju í dag, 2. júní 2018, klukkan 14.

Blessað veri grasið

sem grær kringum húsin

bóndans og les mér

ljóð hans,

þrá og sigur

hins þögula manns.

Blessað veri grasið

sem grær yfir leiðin,

felur hina dánu

friði og von.

Blessað veri grasið

sem blíðkar reiði sandsins,

grasið

sem græðir jarðar mein.

Blessað veri grasið,

blessað vor landsins.

(Snorri Hjartarson)

Einhver fögur þversögn felst í því að svo árvökull og eljusamur bóndi skuli leggja saman hendur nú þegar landið er rétt vaknað aftur til lífsins.

Það er sönnun á einurð og sölumannshæfileikum afa míns þegar

honum tókst að pranga svo pasturslitlum kaupamanni upp á ókunnugt fólk. Í kynnisferð bönkuðum við upp á og fyrir svörum varð sonur bóndans sem þá stóð vart út úr hnefa. Hann kvað föður sinn vera í skítavinnu. Var hér af munni barns komin almenn starfslýsing? Við afi fundum Þormóð í vorverkum úti á akri og ég man enn hvað ég reyndi að þenja út brjóstkassann þegar ég var kynntur fyrir honum. Það reyndist mér mikið gæfuspor að komast í kaupavinnu hjá Þormóði og Guðrúnu og á glaðværa torfu þriggja heimila. Varanlegt systkina- og vinaþel vakir enn tæpri hálfri öld síðar. Það var bara nýlega sem ég áttaði mig á því að ég hef aldrei verið formlega afmunstraður úr þessari kaupamennsku. Tók í arf þráhyggju Flóamannsins, afa míns, og skrepp iðulega austur yfir fjall. Klökkna enn af hjónabandssælunni með síðdegiskaffinu. Þormóður var ákaflega iðjusamur og natinn við öll þau fjölbreytilegu verkefni sem bóndi þarf að geta umsvifalaust leyst. Júgurbólga eða viðgerð á þvottavél heimilisins og vinnuvélum dúkkaði þar upp á lista. Árstíðabundin bústörf í taktföstu hringferli náttúrunnar rofin af fréttum og hádegislúr. Það vakti einlæga aðdáun mína hvernig hann flutti láréttan punkt á milli staða í fjósinu við uppsetningu fyrsta rör-mjaltakerfisins. Fjósgólfið óreglulegt og ómögulegt vitni. Hann brúkaði til verksins gagnsæja og vatnsfyllta slöngu og lét vatnsborðið ráða för. Aðferð sem virtist koma beint úr áhaldakistu Arkímedesar.

Jafnlyndi hans var einstakt og mildi í öllu viðmóti sem hentaði sérstaklega óhörðnuðum unglingum. Kenndi, treysti og valdefldi. Stór hjörð slíkra hafa farið um heimili þeirra hjóna og torfuna í gegnum tíðina. Sú elskuríka festa sem þar ríkti og einhugur hefur orðið mér sem öðrum drjúgt veganesti. Kom okkur öllum til nokkurs þroska.

Töfrum slungnir eru kyrrir sumarmorgnarnir í Flóanum með víða sýn til allra átta og vell spóans í fjarska. Þá er ekki síðri tilfinningin þegar staðið er við ósa Þjórsár þar sem hún ryðst út í hafið í eilífu stríði sínu við sand og ólgandi brim. Grimmdarfrost að vetri og stjörnubjartar nætur þegar mýrar, engi og jafnvel áin frusu eru ekki síður stundir sem festust í minni.

Þessar minningar eru þó einungis umgjörð um uppbyggilegt og fagurt

mannlíf á íslensku sveitaheimili. Góður drengur hefur nú kvatt og blessuð sé minning hans og blessað sé allt sem honum var kærast.

Eiríkur Jónsson.

Þormóður mágur minn var bóndi og starfaði hann alla tíð við búskap á Fljótshólum. Átti búskapurinn og bújörðin hug hans allan. Félagsbú var á Fljótshólum og var hann 17 ára er faðir hans féll frá og rak hann þá búið með móður sinni og bróður. Ágæt samvinna var á milli þeirra og bróður hans við búreksturinn. Hann skrapp á vertíð til Vestmannaeyja þegar um hægðist í búrekstrinum árið 1963 og kynntist þar Guðrúnu systur minni, sem þar starfaði sem íþróttakennari. Tveimur árum seinna gengu þau í hjónaband og eignuðust hlut móður hans í búinu og fimmtán árum síðar einnig hlut bróðurins sem lét þá af búskap. Eftir það ráku þau hjónin búið saman og juku verulega garðræktina, en sendnir garðarnir voru ákjósanlegir fyrir gulrótarrækt. Þau vélvæddu ræktunina og byggðu stóra kæligeymslu þannig að hægt var að sinna markaðnum mestallt árið. Á tímabili keyrði Þormóður jafnframt út grænmetið á höfuðborgarsvæðið, m.a. í Fjarðarkaup, og kom þá oft við hjá Nönnu svilkonu sinni sem passaði upp á að hafa eitthvað gott að borða handa þreyttum bóndanum sem þá í leiðinni náði oft að fleygja sér eins og siður var í sveitinni. Þormóður skildi jafnframt eftir gulrætur og rófur sem fjölskyldan naut góðs af. Fyrir allt það góðgæti er nú þakkað.

Þormóður var gleðimaður og naut þess að vera í hópi góðra vina og taka lagið. Hann hafði fallega tenórrödd eins og hann átti kyn til og söng hann í kirkjukór Gaulverjabæjarkirkju til fjölda ára. Hann var mjög verklaginn og minnist ég helgarferðar til Stöðvarfjarðar þegar við ættingjar af mölinni fórum með honum í byrjun aldarinnar til að girða af 30 hektara skógræktarlands. Hornstaurarnir sem hann setti niður af mikilli fagmennsku standa réttir enn í dag sem staðfesting á vinnubrögðum hans.

Þegar foreldrar okkar brugðu búi á Stöðvarfirði og fluttu suður var ekkert sjálfsagðara hjá Þormóði en að þau dveldu vetrarlangt hjá honum og Guðrúnu meðan þau biðu eftir að íbúð þeirra í Reykjavík yrði tilbúin. Þormóður reyndist þeim alla tíð einstaklega vel og nutu þau þess að dvelja þennan tíma, sem annan, að Fljótshólum við gleði og störf, en mikið var víst spilað þennan veturinn í sveitinni.

Að leiðarlokum vil ég þakka Þormóði vináttu og tryggð sem hann ávallt sýndi mér og minni fjölskyldu og votta Guðrúnu og fjölskyldunni samúð mína.

Bjarnar Ingimarsson.

Þormóður, föðurbróðir minn, hefur kvatt jarðvistina. Horfinn er úr heimi mikill öðlingur. Við fráfall frænda míns hrannast upp margar góðar minningar frá æsku minni á Fljótshólum. Doddi eins og hann var ávallt kallaður var yngstur Fljótshólasystkinanna, átta barna, Sigríðar ömmu og Sturlu afa og kveður hann nú síðastur þeirra. Doddi ól allan sinn aldur á Fljótshólum, fæddist þar og ólst þar upp í stórum systkinahópi á mannmörgu heimili. Tók þar síðar við búinu og bjó þar stórbúi alla sína starfsævi

Doddi var mikill geðprýðismaður og laðaði hann að sér fólk, jafnt börn og fullorðna. Greiðvikinn var hann og gott til hans að leita ef á þurfti. Hann var mikill hagleiksmaður, kom það sér oft vel fyrir bóndann.

Doddi var einn af föstu punktunum þegar ég var að alast upp á Fljótshólum og á ég margar góðar minningar um frænda minn, Fyrir mér var hann alltaf eins og hann væri annar pabbi minn. Því var það eitt sinn þegar ég var lítil stelpa, að ég herti upp hugann og fór á hans fund og bar upp erindið og spurði hann hvort hann gæti ekki bara líka verið pabbi minn, ég vissi jú að sum börn áttu tvo pabba og því skyldi það ekki líka geta verið svo með mig. Doddi brosti í kampinn en spurningu minni var víst aldrei svarað.

Alltaf þegar ég hef verið á ferð á Suðurlandi hef ég reynt að koma við á Fljótshólum og ætíð fengið höfðinglegar móttökur hjá þeim hjónum Dodda og Guðrúnu. Svo á haustin fer ég þangað í „gulrótaleiðangur“ en á Fljótshólum hafa verið ræktaðar um margra áratuga skeið heimsins bestu gulrætur.

En komin eru leiðarlok

og lífsins kerti brunnið

og þín er liðin æviönn

á enda skeiðið runnið.

Í hugann kemur minning mörg,

og myndir horfinna daga,

frá liðnum stundum læðist fram

mörg ljúf og falleg saga.

Svo, vinur kæri, vertu sæll,

nú vegir skilja að sinni.

Þín gæta máttug verndarvöld

á vegferð nýrri þinni.

Með heitu, bljúgu þeli þér

ég þakka kynninguna,

um göfugan og góðan dreng

ég geymi minninguna.

(Höfundur ókunnur)

Á kveðjustund sendi ég Guðrúnu, börnum og fjölskyldum þeirra innilegar samúðarkveðjur.

Minningin lifir, elsku frændi. Hafðu þökk fyrir allt og allt og vertu Guði falinn um alla eilífð.

Marín Jónsdóttir.

Þormóður föðurbróðir minn eða Doddi eins og hann var kallaður var yngstur átta systkina en Einar pabbi minn var elstur. Sturla og Sigríður, foreldrar Dodda, höfðu keypt Fljótshóla í Gaulverjabæjarhreppi árið 1916. Eftir að Sturla lést tók Doddi ungur að árum við búinu með móður sinni og Jóni bróður sínum en stuttu áður höfðu þeir byggt veglegt tvíbýlishús. Amma, Gestur, sem var lamaður frá fæðingu, og Doddi bjuggu austurí og Jón með fjölskyldu sína vesturí eins og sagt var í þá daga. Síðar hætti Jón búskap og við því búi tók sonur Dodda og Guðrúnar. Sturla, yngsti sonur þeirra, býr þar nú með fjölskyldu sinni blómlegu búi.

Við systurnar vorum svo lánsamar að eiga sérstaklega skemmtileg og góð föðursystkini, sem skipuðu stóran sess í uppeldi okkar og eigum við þeim mikið að þakka og Dodda ekki síst. Við systurnar dvöldum frá því við munum eftir okkur í sveitinni hjá ömmu og Dodda, sumur, jól og páska. Við fórum á annan í jólum með rútunni á Selfoss og gistum hjá Jóhönnu föðursystur okkar. Þaðan fórum við morguninn eftir með mjólkurbílnum. Fljótshólar og heimili Dodda og ömmu voru okkar annað heimili. Þar voru okkar föstu rætur í tilverunni. Heimilið á Fljótshólum var og er heimili þar sem ættingjar og vinir sækjast eftir að vera á og er svo enn. Sturla og Mareike, sem nú eru tekin við búi, sýna og sanna að sama gestrisni ræður þar ríkjum. Við systurnar höfðum ungar áhyggjur af því að Doddi ætti erfitt með að ná sér í eiginkonu þar sem hann var svo bundinn við búskapinn. En svo heppilega vildi til, að eitt sinn er hann fór á vetrarvertíð til Vestmannaeyja hitti hann þar dásamlega konu, Guðrúnu Jóhannesdóttur íþróttakennara, sem hann síðar giftist og betri konu gat hann ekki eignast og börnin urðu fjögur. Fyrstu árin eftir að við systur giftumst og eignuðumst börn var það fastur liður að dvelja hjá Dodda og Guðrúnu með börnin og reyna að hjálpa til við bústörfin. Alltaf var okkur jafn vel tekið. Síðar gerðust börn okkar kaupamenn og kaupakonur hjá þeim Dodda og Guðrúnu, sumar eftir sumar. Á því tímabili hófust ættarmót niðja ömmu og afa og voru þau haldin á Fljótshólum. Skemman var tekin í gegn og gerð að samkomusal og afkomendur skemmtu sér á öllum aldri. Doddi var þúsundþjalasmiður og virtist geta gert við allt. Sívinnandi með bros á vör og aldrei man ég eftir að hann segði styggðaryrði við nokkurn mann. Hann var með sama lundarfar og amma. Hafði yndi af fólki og naut þess að hafa það í kringum sig og eins var með Guðrúnu og voru þau mjög samhent hjón og með eindæmum gestrisin.

Doddi frændi þurfti að axla þá þungu byrði að fá parkinssonsveikina og við þá veiki mátti hann og fjölskylda hans glíma í nokkur ár. Guðrún sýndi Dodda mikinn kærleika og ástúð og endalausa þolinmæði í veikindum hans og mun það seint fullþakkað.

Með ást og virðingu kveð ég föðurbróður minn í dag. Betri manni hef ég ekki kynnst.

Anna Sigríður.

Við bræður kveðjum nú einn uppáhaldsfrænda okkar og afabróður, Þormóð Sturluson, eða Dodda eins og við höfum alltaf kallað hann. Þær eru orðnar æði margar góðu stundirnar sem við höfum varið hjá Dodda og Guðrúnu á Fljótshólum. Sem börn vorum við í lengri og skemmri tíma hjá þeim á sumrin í mjög góðu yfirlæti og þegar við urðum eldri tóku við reglubundnar heimsóknir í sveitina með okkar eigin börn. Þessi góðu tengsl má fyrst og fremst þakka nánum tengslum Dodda og Guðrúnar við móður okkar, Dúfu Sylvíu Einarsdóttur, og móðurafa, Einar Sturluson. Mamma var ellefu árum yngri en Doddi og dvaldi mikið á Fljótshólum í æsku. Það má kannski segja að hann hafi verið meira eins og annar stóri bróðir hennar en föðurbróðir.

Doddi var einstaklega vel gerður maður, hæglátur en jafnframt líkamlega og andlega sterkur, skapgóður og vinnusamur, og því mjög góð fyrirmynd fyrir okkur á unglingsárunum. Hann treysti okkur mjög ungum fyrir skepnum, tækjum og tólum og kenndi okkur að vinna og bera virðingu fyrir umhverfi og náttúru. Hann treysti táningi fyrir 40 kúa fjósi þegar fjölskyldan fór austur á Stöð í vikufrí og var það sennilega einhver besti skóli sem hægt er að hugsa sér. Ef óvart var bakkað á fjósvegginn eða drifskaft brotnaði þá voru málin rædd af yfirvegun og lærdómur dreginn af óvarlegri meðferð, en engin styggðaryrði féllu.

Doddi fylgdist sértaklega vel með bílamálum okkar bræðra, eins og afa okkar, og vildi alltaf fara prufutúr ef við komum á nýjum bíl. Rætt var um hestöfl og fjöðrun yfir kaffibolla og dýrindis veitingum í borðstofunni á Fljótshólum, og kostir og gallar yfirfarnir í bak og fyrir. Eftir hverja heimsókn okkar á Fljótshóla stóð Doddi alltaf í dyragættinni og veifaði okkur er við ókum í burtu, og nú hefur hann kvatt okkur í síðasta sinn. Hans er sárt saknað og mun hann lengi lifa í minningu okkar og barna okkar. Við vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð.

Ragnar, Örn og fjölskyldur.

Þormóður Sturluson var fæddur og uppalinn á Fljótshólum í Flóa og bjó þar alla ævi. Hann tók ungur við búi foreldra sinna en auk hefðbundins búskapar var garðrækt stór hluti af búskapnum á Fljótshólum. Móðir hans, Sigríður Einarsdóttir frá Hæli, var ein af þeim fyrstu á Íslandi til að rækta og selja gulrætur í atvinnuskyni en faðir hans, Sturla, kom norðan úr Bárðardal. Hann var ætíð kallaður Doddi innan fjölskyldunnar og lifði hann tímana tvenna í búskap. Í upphafi drógu hestar sláttuvél, snúningsvél og múgavélina. Svo kom blessaður traktorinn og breytti miklu. Það var heldur ekkert rafmagn á bænum framan af búskap Dodda. Vélvæðingin hóf innreið sína í tíð hans og efldi búskapinn en í dag er kúabú á Fljótshólum auk mikillar ræktunar á gulrótum og rófum. Sama fjölskyldan hefur stundað búskap á Fljótshólum frá 1916 og er hann nú í traustum höndum sonar hans og tengdadóttur.

Faðir minn, Einar, var elstur Fljótshólasystkinanna og við systurnar dvöldum langdvölum á Fljótshólum frá barnsaldri. Alltaf var farið af stað austur að vori og í öllum fríum og var þar okkar annað heimili. Það sem dró okkur að Fljótshólum voru mannkostir ömmu okkar og föðursystkina og þá einkum Dodda sem var okkur sem besti bróðir. Gestur bróðir hans kenndi okkur vel að allt er ekki sjálfsagt í lífinu en hann var fatlaður. Hann var einstakur maður sem tók örlögum sínum með jafnaðargeði. Amma og Doddi gerðu allt sem þau gátu fyrir hann. Hann átti ekki einu sinni hjólastól. Hann sat allan daginn á hörðum borðstofustól en Doddi var óþreytandi að aðstoða hann á allan máta og bera hann út í sólskinið þegar vel viðraði.

Söngur og tónlist voru í hávegum höfð á Fljótshólum og átti það vel við Dodda en hann söng í kirkjukór Gaulverjabæjarkirkju i rúm 50 ár og einnig söng hann í Bændakvartettinum.

Hann var giftur Guðrúnu Jóhannesdóttur, íþróttakennara frá Stöð í Stöðvarfirði. Þau kynntust í Vestmannaeyjum þar sem hann var á vertíð og Guðrún að kenna íþróttir.

Það var mjög eftirsótt af börnum og unglingum að fá að vera í sveit á Fljótshólum og þau sem það hnoss hlutu hafa bundist tryggðaböndum við Dodda og hans fjölskyldu. Synir okkar kynntust sveitastörfum þar og fengu gott veganesti í framtíðina og verður það seint fullþakkað. Það var í rauninni alltaf sótt í félagsskap við þau hjónin og á þessum tímamótum er ljúft að minnast margra ánægjustunda sem við hjónin áttum með þeim. Einkum er minnst ferðalaga til útlanda en fyrst var haldið til Kaupmannahafnar og síðan alla leið til Ítalíu árið 1974. Seinna fórum við saman í ótal leikhúsferðir og var þá margt skrafað og spekúlerað.

Doddi var gæddur einstakri ljúfmennsku og jafnaðargeði enda laðaðist fólk og börn að honum. Styggðaryrði voru ekki til í hans orðabók og hann fylgdist af áhuga með öllu sem gerðist í landsmálum og hafði á því ákveðnar skoðanir auk áhuga hans á velferð heimabyggðar.

Við kveðjum heiðursmann og vin með söknuði og vottum aðstandendum hans okkar dýpstu samúð.

Dúfa Sylvía og Guðmundur.

Hvernig kveður maður einhvern sem maður hefur þekkt alla ævi? Einhvern sem hefur einhvern veginn alltaf verið til?

Minningar streyma fram sem þó er erfitt að koma í orð en þegar ég minnist Dodda frænda finn ég fyrir hlýjunni sem streymdi frá honum og rónni sem fylgdi honum. Þegar ég var barn sótti ég í þessa föðurlegu hlýju föðurbróður míns og mín fyrstu ferðalög upp á eigin spýtur voru að skottast austurí, fyrst til Dodda og ömmu og síðar til Dodda og Guðrúnar – nokkrar tröppur niður og nokkrar tröppur upp... og svo var ég komin þangað sem förinni var heitið.

Árin liðu, ég óx úr grasi og hleypti heimdraganum en þó að ferðalögin yrðu lengri og samverustundum okkar fækkaði var alltaf gott að koma að Fljótshólum og njóta stunda í eldhúskróknum eða við stofuborðið í góðu spjalli með kaffibolla og heimabakkelsi. Þar sem hlýja, friður og samheldni ríkja, þar er gott að vera.

Með þessum fátæklegu orðum kveð ég mann sem var ekki einungis föðurbróðir minn heldur átti stóran þátt í að móta mig.

Mér tregt er um orð til að þakka þér,

hvað þú hefur alla tíð verið mér.

Í munann fram myndir streyma.

Hver einasta minning er björt og blíð,

og bros þitt mun fylgja mér alla tíð,

unz hittumst við aftur heima.

(Hugrún)

Elsku Doddi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Guðrún, megi góður Guð standa með þér og þínum.

Þorbjörg Jónsdóttir (Obba).

Tilvera okkar er undarlegt ferðalag.

Við erum gestir og hótel okkar er jörðin.

Einir fara og aðrir koma í dag,

því alltaf bætast nýir hópar í skörðin.

(Tómas Guðmundsson)

Þetta kvæði kom upp í huga minn er ég frétti af andláti föðurbróður míns Þormóðs Sturlusonar. Þrátt fyrir að Þormóður væri föðurbróðir minn vorum við nærri því að vera aldir upp saman, en hann var 13 árum eldri en ég. Þormóður fæddist 27. desember 1935 á Fljótshólum í Flóa. Foreldrar hans voru Sturla Jónsson, bóndi á Fljótshólum, og Sigríður Einarsdóttir húsfreyja. Þormóður var yngstur níu systkina en átta þeirra komust til fullorðinsára. Þormóður er síðastur þessa systkinahóps sem yfirgefur þessa jarðvist. Þormóður tók við búi með móður sinni eftir andlát föður hans árið 1953 en faðir minn Jón Sturluson hafði þá stofnað nýbýli á helmingi jarðarinnar Fljótshóla. Þeir bræður ráku saman félagsbú til ársins 1980 er faðir minn brá búi og flutti til Reykjavíkur. Eins og ég skrifaði hér fyrr vorum við Þormóður næstum eins og bræður en ég var elstur minna systkina og fannst þar af leiðandi Þormóður standa næst mér. Af og til þótti föður mínum nóg um hversu hændur ég var að Þormóði. Þormóður kvæntist eiginkonu sinni Guðrúnu Jóhannesdóttur árið 1965, en það var sama ár og ég flutti frá Fljótshólum. Þormóður var bóndi af guðs náð, undi sér vel við húsdýrahald og ræktun túna og garðávaxta. Þormóður og Guðrún eignuðust fjögur mannvænleg börn en þau eru Sigríður fædd 1966, Jóhannes fæddur 1967, Pálmi fæddur 1970 og Sturla fæddur 1978. Sturla hefur nú tekið við búi á Fljótshólum og rekur þar stórbú með mjólkur- og grænmetisframleiðslu í stórum stíl. Þormóður var maður rólegur í fasi, góðviljaður. Hann var ekki sá sem sóttist eftir titlum, studdi við bakið á sinni fjölskyldu og undi vel við sitt í sveitinni sinni. Aldrei heyrði ég Þormóð tala illa um nokkurn mann en hann var næmur á sérkenni hvers og eins og gat gert góðlátlegt grín að samferðafólki, mér sem öðrum. Þormóður hafði góða söngrödd, söng tenór í kirkjukór Gaulverjabæjarkirkju og í kvartett sem fjórir bændur í Gaulverjabæjarhreppi stofnuðu og kölluðu bændakvartettinn. Síðustu árin hafa verið Þormóði mínum erfið og sorglegt að sjá þennan hrausta og sívinnandi mann verða örkumla og hjálparþurfi af sínum sjúkdómi. Hann var heppinn að hafa eiginkonu sína Guðrúnu ásamt syni og tengdadóttur við hlið sér eins lengi og stætt var, en að lokum mátti hann játa sig sigraðan og flytjast á hjúkrunarheimili þar sem hann andaðist aðfaranótt 16. maí. Ég vil þakka Þormóði fyrir að fá að verða samferða honum gegnum lífið öll þessi ár þrátt fyrir að Atlantshafið hafi skilið okkur að síðustu 22 árin. Haf þú þökk fyrir allt, kæri frændi, og Guð blessi minningu þína.

Sturla Jónsson.