TÓNLIST Leikarinn góðkunni Jeff Goldblum er í þann mund að gefa út djassplötu.
TÓNLIST
Leikarinn góðkunni Jeff Goldblum er í þann mund að gefa út djassplötu. Goldblum lærði á píanó í æsku og hefur spilað við tilefni eins og í spjallþáttum Grahams Nortons og Jimmys Kimmels og komið fram með hljómsveit sinni
The Mildred Snitzer Orchestra
, en þetta er fyrsta platan sem hann gefur út. Platan verður gefin út hjá plötuútgáfu Decca og kemur út síðar á þessu ári.