[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Baksvið Baldur Arnarson baldura@mbl.is Dæmi eru um að fjárfestar hafi hætt við áform um hótelbyggingar vegna aukinnar óvissu í ferðaþjónustunni.

Baksvið

Baldur Arnarson

baldura@mbl.is

Dæmi eru um að fjárfestar hafi hætt við áform um hótelbyggingar vegna aukinnar óvissu í ferðaþjónustunni.

Þetta segir Hreiðar Hermannsson, forstjóri og eigandi Stracta hótels á Hellu, og bendir að bókunum hafi fjölgað minna en vænst var. Óraunhæft hafi verið að reikna með miklum vexti frá metárinu 2017. Nokkrir mánuðir hafi verið óvenjugóðir í fyrra. „Listi fyrirhugaðra hótela er ótrúlegur. Ég hef trú á því að aðeins brot af þessum hótelum verði byggt. Það fæst ekki fjármagn í sum verkefnin og önnur eru menn hættir við,“ segir Hreiðar. Hvað varðar Stracta hótel sé útlit fyrir að áætlanir frá júní til áramóta haldi. Bókunum frá Þjóðverjum og Bretum sé að fækka en fjölga frá Bandaríkjunum og Asíu.

Óttast launahækkanir

Eigendur Stracta hótels hafa boðið það til sölu. „Ég reiknaði ekki með að fá neina fyrirspurn. Það hafa hins vegar komið nokkrar fyrirspurnir. Nokkrir eru að tala í alvöru,“ segir Hreiðar. Hann segir óvissu í kjaramálum og styrkingu krónunnar valda því að menn haldi að sér höndum. Þar með talið erlendir aðilar sem hafa áhuga á að fjárfesta í hótelum á Íslandi.

„Það er stórmál ef það tefst að ganga frá kjarasamningum. Rætt er um tugprósenta launahækkanir. Erlendir aðilar eru logandi hræddir við launaliðinn. Á meðan vilja þeir ekki fjárfesta,“ segir Hreiðar.

Steinþór Jónsson, hótelstjóri Hótel Keflavíkur, segir „skarpa niðursveiflu“ hafa orðið í bókunum í maí. Margir hópar hafi verið afbókaðir og lítið komið í staðinn. Hann segir aðspurður að áskorunin verði að halda í horfinu. „Ég myndi gera ráð fyrir að júní yrði minni en í fyrra. Ég held að þetta verði varnarbarátta og að það verði einhver samdráttur á árinu,“ segir Steinþór um horfurnar.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru bókaðar gistinætur á Austurlandi í apríl 22% færri en í fyrra. Tölurnar miðast við hótel sem eru opin allt árið. Þær ná því til dæmis ekki til Airbnb-íbúða.

Þráinn Lárusson, eigandi Hótel Hallormsstaðar og Hótel Valaskjálfar, segir bókunum hafa fjölgað lítillega milli ára. Ferðaþjónustan sé þó enn smá í sniðum á Austurlandi.

„Það þarf svo lítið til að það verði aukning eða samdráttur. Þetta er jafn lélegt og það hefur alltaf verið,“ segir Þráinn og gagnrýnir aðgerðaleysi í markaðssetningu á ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Boðaðir skattar höfðu áhrif

Stjórnvöld þurfi að leggja miklu meira fé í málaflokkinn, svo dreifa megi ferðamönnum betur. Áform síðustu ríkisstjórnar um hækkun virðisaukaskatts á gistingu hafi dregið úr bókunum hópa í ár.

„Nokkuð var um að hópferðir fyrir þetta ár væru teknar úr sölu í fyrra vegna boðaðra skattahækkana. Nú eru þær hins vegar aftur komnar í sölu fyrir næsta ár. Það lítur ágætlega út með bókanir.“

Þráinn segir viðbúið að Heimsmeistaramótið í knattspyrnu (HM) í Rússlandi í sumar dragi úr bókunum til Íslands. Reynslan af síðustu mótum, sérstaklega 2006 og 2010, sé að HM hafi marktæk áhrif á ferðalög. Vegna HM kjósi margir að ferðast til Rússlands, eða vera heima og fylgjast með mótinu. HM í Brasilíu 2014 hafi þó haft minni áhrif á eftirspurnina.

Erna Hauksdóttir, fv. framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir vísbendingar um að HM í knattspyrnu hafi áhrif á innlenda eftirspurn í greininni.

„Ég man eftir þessari umræðu. Mig minnir að hótel úti á landi hafi sérstaklega orðið fyrir barðinu á þessu. Þannig að þegar HM var að koma vildu menn vera uppi í sófa. Það býr náttúrlega stór hluti þjóðarinnar á höfuðborgarsvæðinu.“