Bæjartorg Hér má sjá pylsuvagn Bæjarins bestu kominn á sinn stað. Ný spennistöð hefur verið byggð á torginu.
Bæjartorg Hér má sjá pylsuvagn Bæjarins bestu kominn á sinn stað. Ný spennistöð hefur verið byggð á torginu. — Mynd/Reykjavíkurborg
Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Framkvæmdir við endurgerð Tryggvagötu frá Pósthússtræti að Lækjartorgi hefjast í byrjun næstu viku. Lokað verður fyrir umferð um Tryggvagötu á þessum kafla þar til verki lýkur í byrjun október.

Sigtryggur Sigtryggsson

sisi@mbl.is

Framkvæmdir við endurgerð Tryggvagötu frá Pósthússtræti að Lækjartorgi hefjast í byrjun næstu viku. Lokað verður fyrir umferð um Tryggvagötu á þessum kafla þar til verki lýkur í byrjun október. Bílaumferð verður á meðan beint um Geirsgötu.

Þá munu einnig hefjast framkvæmdir við Steinbryggju, en svo heitir nú sá kafli Pósthússtrætis sem er á milli Tryggvagötu og Geirsgötu. Á framkvæmdatíma verður hún að mestu opin fyrir gangandi vegfarendur með einhverjum undantekningum, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg.

Tvær nýjar göngugötur

Inni á byggingarreitnum er einnig að hefjast vinna við frágang nýrra göngugatna sem fengið hafa heitin Kolagata og Tónagata. Kolagata mun liggja á milli Steinbryggju og Kalkofnsvegar, samsíða Tryggvagötu og Geirsgötu. Tónagata mun liggja frá Tryggvagötu yfir Geirsgötu að tónlistarhúsinu Hörpu.

Bæjartorg, þar sem hinn heimsfrægi pylsuvagn Bæjarins bestu hefur staðið um áratuga skeið, verður endurgert samtímis. Bæjarins bestu fá framtíðarstað á Bæjartorgi að framkvæmdum loknum en pylsuvagninn hefur verið til bráðabirgða við hlið Eimskipafélagshússins.

Samhliða þessum framkvæmdum er unnið að lokafrágangi á Kalkofnsvegi og Geirsgötu, en ekki er gert ráð fyrir frekari truflunum á umferð vegna þess.

Kalkofnsvegur verður tekinn í notkun í áföngum og í lok vikunnar verður umferð hleypt á nýjan kafla, vestari akrein, frá Sæbraut að Geirsgötu. Þá verða einnig virkjuð ný umferðarljós á gatnamótum Geirsgötu og Kalkofnsvegar í lok vikunnar. Ljósastýring verður stillt til að mæta umferðarflæði um breytt gatnamót.

Framkvæmdirnar munu óneitanlega hafa áhrif á mannlífið í miðborginni og verða gerðar sérstakar ráðstafanir til að beina gangandi vegfarendum um öruggar gönguleiðir, segir í frétt frá borginni. Skilti verða sett upp á nokkrum stöðum til að vísa veginn og verða þau einnig á ensku vegna þess mikla fjölda erlendra ferðamanna sem eru á þessum slóðum.