Hafliði Helgason
Hafliði Helgason
Hafliði Helgason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Starfið var auglýst í mars og svo á nýjan leik í apríl. Segir frá þessu á vefsíðu ráðuneytisins.

Hafliði Helgason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins. Starfið var auglýst í mars og svo á nýjan leik í apríl. Segir frá þessu á vefsíðu ráðuneytisins.

Hafliði hefur að undanförnu starfað sem framkvæmdastjóri Hringbrautar, en á að baki langan feril við fréttamennsku og almannatengsl, m.a. hjá Fréttablaðinu og Framtakssjóði Íslands. Hann hefur MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík, auk menntunar í blaðamennsku og hugvísindum. Hann kemur til starfa í ráðuneytinu í byrjun ágúst næstkomandi.