Samstarf Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og Eyjólfur Árni Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins.
Samstarf Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og Eyjólfur Árni Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. — Ljósm/Kristinn Ingvarsson
Efling starfsnáms og verkefnavinnu í samstarfi við fyrirtæki í landinu er meðal helstu áhersluatriða í nýrri viljayfirlýsingu um samstarf milli Háskóla Íslands (HÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA).

Efling starfsnáms og verkefnavinnu í samstarfi við fyrirtæki í landinu er meðal helstu áhersluatriða í nýrri viljayfirlýsingu um samstarf milli Háskóla Íslands (HÍ) og Samtaka atvinnulífsins (SA). Jón Atli Benediktsson, rektor HÍ, og Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður SA, undirrituðu yfirlýsinguna í Háskóla Íslands á dögunum.

Með yfirlýsingunni vilja Háskóli Íslands og Samtök atvinnulífsins koma á fót formlegu samstarfi, bæði til að mæta þörfum nemenda en ekki síður atvinnulífs og samfélags.

Hröð þróun á vinnumarkaði

Samfara örum tækni- og samfélagsbreytingum er, segir í frétt frá HÍ, gert ráð fyrir að þróun á vinnumarkaði verði hröð. Slíkt kallar á starfsfólk með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Til þess að tryggja velsæld, hagvöxt og framleiðni hér á landi og áframhaldandi samkeppnishæfni Íslands á alþjóðavísu telja báðir aðilar nauðsynlegt að menntakerfi og atvinnulíf eigi náið samstarf en með því megi jafnframt tryggja áframhaldandi framþróun íslensks samfélags.

Greina samstarfsfleti

Í viljayfirlýsingunni eru tilgreind nokkur verkefni sem ætlunin er að ráðast í á næstunni. Greina á samstarfsfleti og kanna bæði þörf og viðhorf atvinnulífsins og háskólasamfélagsins. Þessi vinna verður í höndum samstarfshóps sem skipaður verður samningsaðila. Tekið er sérstaklega fram að í samstarfi þessu verði settar reglur sem eiga að tryggja gæði slíkra verkefna og að akademískt frelsi verði virt. sbs@mbl.is