Viðræður Hugsanlegt meirihlutasamstarf er í mótun í Reykjavík.
Viðræður Hugsanlegt meirihlutasamstarf er í mótun í Reykjavík. — Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
„Viðræðurnar hafa gengið vel,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar í Reykjavík, en fulltrúar Viðreisnar, Samfylkingar, VG og Pírata hafa fundað eftir sveitastjórnarkosningarnar með myndun nýs meirihluta í Reykjavík í huga.

Þórdís vildi ekki segja nákvæmlega hvað hefði farið fram á fundunum. „Við höfum sagt það áður að við förum í gegnum málaflokkana, höfum farið dýpra og dýpra og erum að átta okkur á því hvernig við viljum sjá næstu fjögur ár.“

Spurð hvort ekki sé líklegra en ekki að flokkarnir myndi nýjan meirihluta í borginni segir Þórdís ekki hægt að segja til um það. „En það gengur mjög vel og hefur gert frá byrjun.“

Hún segir að flokkarnir muni halda áfram að funda um helgina en áður hefur verið greint frá því að stefnt sé að því að ljúka viðræðum fyrir fyrsta fund nýrrar borgarstjórnar 19. júní.

Oddvitar flokkanna hafa lítið sem ekkert viljað tjá sig um hver verður borgarstjóri ef samstarfið gengur eftir. Þórdís segir þau nú vera að ræða málefnin og borgarstjórastóllinn verði skoðaður seinna. johann@mbl.is