Fyrsti leikur Fjöldi fólks mætti á fyrsta heimaleik Magna í sumar þegar liðið tók á móti Þrótti Reykjavík í blíðskaparveðri fyrr í vikunni. Liðið þurfti þó að lúta í lægri haldi en lokatölur voru 4-1 eftir jafnan leik framan af.
Fyrsti leikur Fjöldi fólks mætti á fyrsta heimaleik Magna í sumar þegar liðið tók á móti Þrótti Reykjavík í blíðskaparveðri fyrr í vikunni. Liðið þurfti þó að lúta í lægri haldi en lokatölur voru 4-1 eftir jafnan leik framan af. — Ljósmynd/Magni
[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Íbúar Grýtubakkahrepps reistu í sameiningu nýja stúku fyrir knattspyrnulið hreppsins, Magna. Stúkan, sem reist var á um tveimur vikum, tekur nú 380 manns í sæti en íbúarnir eru 372 talsins. Heimamenn eru sannfærðir um að um heimsmet sé að ræða.

Aron Þórður Albertsson

aronthordur@mbl.is

Þetta var unnið í sjálfboðavinnu á kvöldin og í frítíma fólks héðan úr Grenivík og nágrenni,“ segir Heimir Ásgeirsson, eigandi Eyjabita og einn bakhjarla knattspyrnuliðsins Magna, um nýja stúku félagsins sem tekin var í notkun fyrr í vikunni. Magni hefur undanfarin ár leikið í neðri deildum á Íslandi en komst í fyrra upp í næstefstu deild í fyrsta sinn frá árinu 1978, en þar er gerð krafa um ákveðna stærð af stúku.

Alls tekur stúkan nú um 380 manns í sæti og rúmar því alla íbúa Grýtubakkahrepps og rúmlega það, en íbúar hreppsins eru 372 talsins. Heimir segir að það hafi tekið um tvær vikur að reisa stúkuna með aðstoð fjölda velunnara félagsins.

620 klukkustundir af vinnu

„Það voru sex smiðir sem unnu á kvöldin og í öllum sínum frítíma við að reisa stúkuna með góðri hjálp félagsmanna. Þess utan héldum við eitt vinnukvöld þar sem um 30 manns mættu, bæði gamlir leikmenn Magna og íbúar í bænum. Í heildina held ég að þetta hafi verið um 620 klukkustundir af vinnu. Efnið fengum við frá Byko og Eyjabiti sá síðan um gámana sem hýsa fjölmiðlamenn,“ segir Heimir sem telur að ef verkið hefði verið boðið út hefði kostnaður verið í kringum 15 milljónir króna.

Spurður um hvort stúkan sé ekki of stór fyrir jafnlítinn bæ og Grenivík segir Heimir að í fyrsta leik hafi það sýnt sig að svo er ekki.

„Í fyrsta leik á móti Þrótti Reykjavík var stúkan þéttsetin og mikil stemning. Næst er síðan nágrannaslagur á móti Þór Akureyri og það er alveg klárt að það verður fullt á þeim leik og rúmlega það,“ segir Heimir.

Heitur pottur í VIP-stúkunni

Nýlega kom fram hugmynd um að búa til svokalla heiðursstúku við hlið nýju stúkunnar, þar sem nú er lítil geymsla. Þar yrði komið fyrir heitum potti þar sem fólk gæti setið og fylgst með leikjum liðsins. Á þaki geymslunnar sem um ræðir er pallur sem áður var hugsaður sem aðstaða fyrir fjölmiðlamenn. Aðspurður segir Heimir að sér hafi verið bent á þessa hugmynd en hún sé þó ekki á dagskrá á næstunni.

„Þetta var hugmynd sem fjölmiðlamenn að sunnan komu með og ég heyrði nú bara fyrst af þessu fyrir nokkrum dögum. Maður vill ekki fara að lofa upp í ermina á sér enda er þetta ekkert sem maður er farinn að hugsa út í. Allur krafturinn fór í að byggja þessa stúku en svo veit maður aldrei í framtíðinni,“ segir Heimir, en framundan hjá Magnamönnum er bygging nýs vallarhúss. Hingað til hafa klefar sundlaugar bæjarins verið notaðir sem aðstaða fyrir knattspyrnuliðið þegar leikir fara fram.

„Þegar leikir fara fram er sundlauginni lokað auk götunnar frá sundlauginni að vallarstæðinu. Næst á dagskrá hjá okkur er því að reisa aðstöðuhús við hlið vallarins svo að sundlaugin geti verið opin og ekki þurfi að loka götunni,“ segir Heimir.