Sakamál Ráðist var á manninn með reiðhjóli og hann barinn á götu úti.
Sakamál Ráðist var á manninn með reiðhjóli og hann barinn á götu úti. — Morgunblaðið/Eggert
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Engjateig í Reykjavík eftir hádegi mánudaginn 4. júní síðastliðinn, en tilkynnt var um árásina laust fyrir klukkan hálfþrjú.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að líkamsárás sem átti sér stað á Engjateig í Reykjavík eftir hádegi mánudaginn 4. júní síðastliðinn, en tilkynnt var um árásina laust fyrir klukkan hálfþrjú. Kemur þetta fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Árásin átti sér stað á eða við göngustíg sem liggur á milli Engjateigs 9 og 11, að Sigtúni. Þar veittist rúmlega tvítugur maður að karlmanni um fertugt sem var á göngu með hundinn sinn. Árásarmaðurinn lét höggin dynja á honum, notaði hjól sitt sem barefli og skildi fórnarlamb sitt efir í blóði sínu.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að líkamsárásinni að hafa samband í síma 444-1000.

Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið hermann.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.