WOW air flutti 328 þúsund farþega til og frá landinu í maí. Það eru um 60% fleiri farþegar en í maí árið 2017, að því er fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu. Sætanýting WOW air var 90% í maí í ár en var 86% í sama mánuði í fyrra.

WOW air flutti 328 þúsund farþega til og frá landinu í maí. Það eru um 60% fleiri farþegar en í maí árið 2017, að því er fram kemur í tilkynningu frá flugfélaginu.

Sætanýting WOW air var 90% í maí í ár en var 86% í sama mánuði í fyrra. Nýtingin jókst því þrátt fyrir að framboðnum sætakílómetrum hafi verið fjölgað um 59% milli ára.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt um 1,2 milljónir farþega. Komufarþegum WOW air fjölgaði um 25% í maí á milli ára, samanborið við 13% vöxt heildarmarkaðarins til Íslands, segir í tilkynningunni.