Erlendur Magnússon
Erlendur Magnússon
Erlendur Magnússon var kjörinn stjórnarformaður af nýrri stjórn Heimavalla, sem kjörin var á hluthafafundi sem haldinn var á Hilton Nordica Hóteli í gær.

Erlendur Magnússon var kjörinn stjórnarformaður af nýrri stjórn Heimavalla, sem kjörin var á hluthafafundi sem haldinn var á Hilton Nordica Hóteli í gær. Erlendur er eigandi Total Capital Partners og var stjórnarformaður Borgunar í þrjú ár, eða þar til í mars á þessu ári.

Í stjórn Heimavalla voru einnig kjörin Anna Þórðardóttir, Arthur Irving, Halldór Kristjánsson og Hildur Árnadóttir.