Bragi Guðbrandsson
Bragi Guðbrandsson
Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, sagðist í viðtali við mbl.is í gær vera afskaplega ánægður með meginniðurstöður úttektarinnar.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, sagðist í viðtali við mbl.is í gær vera afskaplega ánægður með meginniðurstöður úttektarinnar.

Hann sagðist sömuleiðis ánægður með að skýrslan væri komin út en nefndi að honum hefði ekki gefist kostur á að lesa hana vandlega.

„Það er skiljanlega svo fyrir mann eins og mig sem hef helgað líf mitt baráttu fyrir réttindum barna, að það er afskaplega sársaukafullt að sitja undir því svo mánuðum skiptir að hafa með athöfnum stefnt öryggi barna í hættu með því að gera tilraun til að koma þeim í hendur á meintum barnaníðingi,“ sagði Bragi og bætti við að hann hefði fórnað yfir 30 árum ævi sinnar í að berjast fyrir réttindum barna og sérstaklega gegn kynferðisofbeldi. „Þessu hef ég þurft að sitja undir og það er mikill léttir að það mál er nú algjörlega úr sögunni.“

Bragi sagði að ýmislegt fleira mætti segja um málið sem hefur verið í gangi en kveðst nú vilja halda áfram með líf sitt og líta á bjartari hliðar tilverunnar. „Það er gott að þetta er afstaðið. Skýrslan er afdráttarlaus, hún er mjög vel unnin og afskaplega vel rökstudd í alla staði og raunar í öllum aðalatriðum kom hún mér ekki á óvart.“

Spurður hvað niðurstaðan þýddi varðandi framboð hans til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna staðfesti hann að ríkisstjórnin hefði ákveðið það á fundi sínum í gærmorgun að málið myndi ekki hafa nokkur áhrif á framboð hans en kosið verður í nefndina 29. júní næstkomandi. freyr@mbl.is