— AFP
Til átaka kom við landamæri Ísraels og Palestínu á Gaza-svæðinu í gær þar sem mótmælendur köstuðu grjóti og öðru lauslegu í átt að ísraelskum hermönnum sem svöruðu með því að skjóta táragasi á hópinn.
Til átaka kom við landamæri Ísraels og Palestínu á Gaza-svæðinu í gær þar sem mótmælendur köstuðu grjóti og öðru lauslegu í átt að ísraelskum hermönnum sem svöruðu með því að skjóta táragasi á hópinn. Til harðra átaka kom á sömu slóðum um miðjan maí þegar tugir Palestínumanna féllu fyrir kúlum hermanna, en fólkið hafði þá komið saman til að mótmæla opnun sendiráðs Bandaríkjanna í Jersúsalem.