Óðinn Skúli fæddist 28. maí 2002. Hann lést 24. maí 2018.

Óðinn Skúli var jarðsunginn 8. júní 2018.

Elsku hjartans vinur.

Hversu ósanngjarnt er það að ungur dásamlegur drengur er hrifinn á brott frá fjölskyldu og vinum?

Fyrsta minning okkar af Óðni Skúla fjögurra eða fimm ára er þegar við vorum nágrannar og með honum og Kristni Viktori syni okkar mynduðustu órjúfanleg vinabönd.

Saman í leikskóla, skóla, fótbolta og í leik og starfi.

Seinna meir bættist Gunnþór Elís í vinahópinn og til varð þríeyki. Til eru ófáar minningar um þá þrjá saman í fótbolta, að gista, horfa á mynd eða bara að hnoðast saman. Það er ólýsanlega sárt að horfa á eftir þér, elsku Óðinn Skúli okkar. Við munum minnast áranna sem við áttum með þér um ókomna tíð. Þær minningar verða aldrei frá okkur teknar.

Elsku Erla, Árni, systkini og aðrir aðstandendur megi Guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Óðinn Skúli var sannur vinur og gleðigjafi.

Ykkar vinir

Svava Þórey, Helgi, Kristinn Viktor og fjölskylda.